Harmageddon

Smitsjúkdómar í Evrópusambandinu

Frosti Logason skrifar
MYND/Pjetur
Á meðal andstæðinga aðildar Íslands að Evrópusambandinu eru víst einhverjir sem telja þingmanninn Vigdísi Hauksdóttur hafa fengið á sig mikla og óverðskuldaða gagnrýni undanfarið.

Þar eru margir ósammála því að Vigdís hafi gert málstaðnum ógagn með því að fara ítrekað með staðlausa stafi í fjölmiðlum og telja sumir þvert á móti að hún eigi heiður skilin fyrir vasklega framgöngu í nafni fullveldis.

Vigdís lætur heldur engan bilbug á sér finna. Í dag benti hún á enn eina hættuna sem af Evrópusambandinu stafar. Nefnilega smitsjúkdóma í Grikklandi. 



-hræðilegar fréttir berast frá Grikklandi: "Martin McKee, prófessor í evrópskri lýðheilsu og einn af höfundum skýrslunnar, segir við breska blaðið The Independent að fyrir utan malaraíu hafi komið til sögunnar á ný í Grikklandi margir smitsjúkdómar sem tekist hafi að halda í skefjum undanfarin 50 til 60 ár með öflugum aðgerðum í þágu lýðheilsu." segir Vigdís á Facebook síðu sinni og hlekkjar við grein af vef Evrópuvaktarinnar sem bendir á að Evrukreppan hafi leitt til „hamfara“ í grískum heilbrigðismálum.








×