Varðveita beri traust og sjálfstæði bankans Jón Hákon Halldórsson skrifar 20. desember 2014 14:00 Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins segir að sjálfstæður Seðlabanki stuðli að stöðugleika og vexti. vísir/gva
Það er mikilvægt að varðveita sjálfstæði og traust á Seðlabanka Íslands, segir í yfirlýsingu sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem kynnt var í gær. Þar segir að breytingar á lögum um bankann eigi að taka mið af þeim umbótum sem voru gerðar á lagaumhverfi bankans árið 2009, með Peningastefnunefnd og áreiðanleika í ákvarðanatöku. Sendinefndin, undir forystu Peters Dohlmans, lauk í gær tveggja vikna heimsókn sinni til Íslands, en Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn gerir reglulega úttekt á efnahagslífi aðildarlanda sinna. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir að sjálfstæður og áreiðanlegur Seðlabanki geri ákvarðanatöku betri, sem stuðli svo aftur að efnahagslegum stöðugleika og vexti. Það sé síðan forsendan fyrir því að auka efnahagslegt frelsi. Eins og fram hefur komið vinnur nefnd á vegum Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, að endurskoðun laga um Seðlabanka Íslands. Nefndin hefur ekki lokið störfum en reiknað hefur verið með að skipað verði að nýju í stöðu seðlabankastjóra þegar nýju lögin taka gildi. Í yfirlýsingu sendinefndarinnar segir að dregið hafi úr hagvexti á árinu, en Dohlman segir að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn geri ráð fyrir 2 prósenta hagvexti á þessu ári og þriggja prósenta hagvexti á þeim næsta. Samkvæmt tölum Hagstofunnar var hagvöxtur á fyrstu níu mánuðum ársins engu að síður einungis 0,5 prósent. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir að horfur í efnahagsmálum séu jákvæðar og það ætti að styðja við áætlun um losun fjármagnshafta. „Ísland hefur aldrei verið í betri stöðu frá hruni,“ sagði Dohlman á blaðamannafundinum í gær. Það væru þó nokkrir áhættuþættir, eins og miklar skuldir hins opinbera. Eftirmál fjármálaáfallsins séu enn nokkur og hefur það áhrif á hagvöxt og dregur úr ytri stöðugleika. Stærsta verkefnið sé að auka frelsi í flæði fjármagns og að gera samskipti fjármálamarkaða á Íslandi við alheiminn eðlileg á ný. „Við erum ánægð með skref stjórnvalda í þessu skyni á undanförnum mánuðum,“ segir Dohlman. Þau hafi sýnt að skilningur sé á hvert verkefnið er og hvaða leikir eru í stöðunni. „Við vonum að LBI-samningurinn geti orðið hvati fyrir frekari skref. Og muni hafa langvarandi jákvæð áhrif á hagkerfið,“ sagði Dohlman. Þar vísar hann í samning á milli slitabús gamla Landsbankans og nýja Landsbankans sem leiddi til þess að slitabúið fékk heimild til að greiða 400 milljarða króna til forgangskröfuhafa.
Mest lesið Base parking gjaldþrota Viðskipti innlent Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Viðskipti innlent Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Viðskipti innlent Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Viðskipti innlent Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Viðskipti innlent Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Viðskipti innlent VÍS gefið yfir 1.100 fjölskyldum barnabílspegla í sængurgjöf Samstarf Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Viðskipti innlent Bein útsending frá Nýsköpunarviku Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Íslendingar þurfi að gæta hófs í vexti efnahagslífsins Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman búskap Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Gera þrjátíu til fjörutíu kaupsamninga á hverjum degi Áhorf á Eurovision hríðfellur Aukið atvinnuleysi Sjá meira