Halldór Ragnarsson rekinn sem forstjóri Pihl & Sön 13. maí 2013 14:39
Halldóri P. Ragnarssyni forstjóra danska bygginga- og verktakarisans Pihl & Sön, móðurfélags Ístaks, hefur verið vikið frá störfum. Hann hafði aðeins gengt stöðunni í eitt ár. Ákvörðun þessi var gerð opinber í dag í kjölfar birtingar á blóðrauðu uppgjöri verktakans fyrir síðasta ár. Í frétt á vefsíðu Berlingske Tidende segir að 473 milljóna danskra kr., eða tæplega 10 milljarða kr., tap hafi verið á rekstri Pihl & Sön í fyrra. Þetta er yfir tvöfalt tapið á rekstrinum árið á undan. Taprekstur Pihl & Sön stafar m.a. af vandmálum með fleiri verkefni utan Danmerkur en þau hafa kostað verktakann afskriftir upp á yfir hálfan milljarð danskra króna. Í fréttinni segir að vegna þessara vandamála ætli Pihl & Sön að einbeita sér að markaðinum á Norðurlöndunum í framtíðinni. Það verður Jens Nyhus frá byggingafyrirtækinu MT Höjgaard sem tekur við stöðunni af Halldóri P. Ragnarssyni. Nyhus getur hinsvegar ekki losnað undan starfssamningi sínum strax og því mun Jan-Gunnar Glave gegna stöðunni til bráðabirgða.
Mest lesið Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent Fólk geti nýtt séreignarsparnaðinn seinna á árinu Neytendur Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Icelandair grunar flugmenn um græsku Viðskipti innlent Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira