Ekki ósátt við lítið fylgi Hugrún Halldórsdóttir skrifar 16. mars 2013 13:25
Margrét Tryggvadóttir liðsmaður Dögunar segist ekki óánægð með það tæplega tveggja prósenta fylgi sem flokkur hennar mælist með í nýrri könnun. Hún efast um að allir þeir flokkar sem hafa sótt um listabókstaf verði með í kosningabaráttunni í lok apríl. Framsókn, Sjálfstæðisflokkurinn, Samfylkingin, Björt Framtíð og Vinstri Grænir mælast með tæplega níutíu prósenta fylgi samkvæmt nýrri könnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins. Aðrar stjórnmálahreyfingar ná ekki fimm prósenta fylgi en Dögun, sem heldur landsfund sinn í dag, mælist með eitt komma sex prósenta fylgi. „Ég get ekki verið ósátt við það. Það sem er merkilegt við þessar kannanir er að það er gríðarlegt flökt á fylgi og það eru margir mjög óákveðnir ennþá þannig að ég held að núna sé einmitt tækifærið til þess að gera raunverulegar breytingar," segir Margrét Tryggvadóttir, þingmaður og félagi í Dögun. Aðspurð hvort róðurinn verði ekki erfiður í ljósi þess að fjölmörg ný framboð berjast um hituna svarar Margrét: „Jú, það er erfitt og ég efast um að allir flokkar sem hafa fengið og sótt um listabókstaf komi til með að verða í framboði því það er á brattann að sækja. Við erum hins vegar búin að vera að undirbúa okkur í meira en ár, þetta eru eiginlega að verða tvö ár sem við höfum verið að vinna að okkar málum." Margrét telur þetta hugsanlega veita Dögun ákveðið forskot enda stór hópur sem kemur að framboðinu. „Þannig að ég held að við höfum visst forskot þegar kemur að því," segir hún að lokum.
Mest lesið Sextán ára reyndi að stinga lögguna af Innlent Allt önnur spá í kortunum Innlent „Ég kem ekki nálægt þessum málum aftur“ Innlent Gosmóða yfir höfuðborgarsvæðinu í dag Innlent Skynsamlegt að loka gluggum og setja á hringrásarstillingu í bílnum Innlent „Þessi kostnaður hverfur ekki“ Innlent Einn stunginn þegar tveir hópar voru að útkljá sín mál Innlent Loka vinnuskólanum og leikskólabörnum haldið innandyra Innlent Karlmaður á þrítugsaldri lést í slysinu á Vesturlandsvegi Innlent Segir allan áburð um kynferðisbrot úr lausu lofti gripinn Innlent Fleiri fréttir Rannsaka kynferðisbrot en ekki innbrot Ráðherra sendir lögreglu erindi vegna netsölu áfengis Umdeild ákvörðun ráðherra og gosmóða yfir borginni Auka framlag Íslands til UNRWA um hundrað milljónir Skýra þurfi stöðu ríkissáttasemjara Karlmaður á þrítugsaldri lést í slysinu á Vesturlandsvegi Kári Stefánsson formaður í nýjum starfshóp „Ég kem ekki nálægt þessum málum aftur“ Senda fólk inn úr sólinni Segir allan áburð um kynferðisbrot úr lausu lofti gripinn Sextán ára reyndi að stinga lögguna af Ólíðandi misbeiting matvælaráðherra á valdi Þyrla kölluð út vegna vélsleðaslyss við Langjökul „Svartur dagur fyrir dýravelferð á Íslandi“ Allt önnur spá í kortunum Ólafur Ragnar segir deilur um forsetaembættið endanlega afgreiddar Skynsamlegt að loka gluggum og setja á hringrásarstillingu í bílnum Segja ákvörðun Bjarkeyjar í berhöggi við stjórnarskrá Fjórar snyrtistofur sektaðar fyrir ófullnægjandi verðmerkingar Ákvörðunin skref í rétta átt Loka vinnuskólanum og leikskólabörnum haldið innandyra Óttast að enginn hvalur verði veiddur þrátt fyrir leyfið Fækkar í Þjóðkirkjunni og fjölgar í Siðmennt Hvalveiðar heimilaðar og gosmóða yfir höfuðborginni Bjarkey veitir Hval leyfi til að veiða 128 langreyðar Siðanefnd sýknar Halldór og Vísi af kæru Arnars Þórs Rafmagnsleysi í Kópavogi og Fossvogi Landris hafið að nýju og má gera ráð fyrir öðru gosi Þeim fjölgar sem kenna án kennsluréttinda Einn stunginn þegar tveir hópar voru að útkljá sín mál Sjá meira