Háskóli Íslands: Ekki meir, ekki meir… Jón Baldvin Hannibalsson skrifar 11. september 2013 06:00 „Það versta er ekki fólska hinna illviljuðu; það versta er þögn og afskiptaleysi hinna góðviljuðu“ (Ókunnur) Skýringar forráðamanna HÍ á fyrirvaralausri ákvörðun þeirra um að afturkalla ráðningu mína til kennslu við stjórnmálafræðideild skólans standast ekki skoðun. Þeir leyfa sér að ganga langt í að hagræða staðreyndum í von um að geta breitt yfir það ófremdarástand sem ríkir innan Félagsvísindasviðs. Þessar skýringar bera vott um skort á sannleiksást, vilja til yfirhylmingar (e. cover-up) og ódrengskap í garð þeirra sem verða að búa við afleiðingarnar af þeirra eigin klúðri. Hverjar eru þessar skýringar? Látið er eins og þetta sé allt honum Baldri að kenna. Dr. Baldur Þórhallsson prófessor á að hafa beðið mig um að líta við í nokkra tíma á námskeiði á hans vegum. Þetta á að hafa verið einkamál Baldurs. Baldur hafi síðan afturkallað ákvörðun sína. Þar með beri Félagsvísindasvið og stjórnmálafræðideild enga ábyrgð. Þetta er hins vegar, að mati rektors, tilefni til að setja reglur um gestakomur til háskólans. Allt er þetta eftiráspuni manna sem virðast ekki þora að bera ábyrgð á orðum sínum og gjörðum. Staðreyndirnar eru allt aðrar. Dr. Baldur kom hvergi nærri þessu fyrirhugaða námskeiði, enda er hann í leyfi frá háskólanum sem gestaprófessor í Bandaríkjunum. Verkefnið sem mér var falið að vinna á vegum stjórnmálafræðideildar var að undirbúa námsáætlun, annast kennslu (fimmtán fyrirlestrar og fimm umræðutímar); einnig að annast námsmat (ritgerðir og próf) nemenda til B.A.- og M.A.-prófa, í samstarfi við tvo aðra starfsmenn deildarinnar. Þetta var mér falið að gera með bréfi þann 9. júlí. Í bréfinu segir m.a.: „Þetta væri deildinni mikils virði. Það er löngu kominn tími til þess að þú komir aftur hingað“. Þetta sögðu þeir þá. Nú er allt í einu komið annað hljóð í strokkinn. Hvað veldur? Vera má, að stjórnsýslu HÍ sé í ýmsu ábótavant, eins og rektor gefur til kynna. Vonandi er ástandið samt ekki svo slæmt að menn séu kallaðir til af götunni til að skipuleggja námsefni útskriftarnema og annast kennslu, án hæfismats eða samráðs við deildarforseta og prófessora. Getur það verið? Trúir því nokkur? Seint mun þá sækjast að skipa Háskóla Íslands í röð 100 bestu í heiminum með slíku háttalagi.Að hengja bakara fyrir smið Úr því að forráðamenn háskólans bera ekki meiri virðingu fyrir staðreyndum en raun ber vitni er eins gott að rekja aðdragandann að ákvörðun þeirra um að afturkalla ráðningu mína lið fyrir lið. Þetta er nefnilega ekki þeirra einkamál.Mánudagur, 26. ágúst: Mér er tilkynnt símleiðis að kennarar við kynjafræði hafi skriflega mótmælt ráðningu minni. Þegar spurt var um ástæður var mér sagt að þær teldu ráðningu mína ekki samræmast „heiðri og trúverðugleik háskólans“ þar sem ég hefði í fjölmiðlum verið borinn sökum um kynferðislega áreitni. Ákæruskjali þeirra væri beint til deildarforseta og deildarstjórnar. Mér var sagt að stjórn deildarinnar hefði setið á maraþonfundum klukkutímum saman til að hlusta á óhróður um mína persónu. Það væri hins vegar engan bilbug á forráðamönnum deildarinnar að finna. Þeir myndu ekki láta kúga sig. Jafnframt vildu þeir fullvissa sig um að ég mundi ekki renna af hólmi.Þriðjudagur, 27. ágúst: Þá kvað við annan tón. Þeir kváðust hafa misst alla stjórn á umræðunni því að heiftin og ofstækið kynnu sér engin takmörk. Þeir væru að niðurlotum komnir. Þeim þætti miður að hafa tælt mig inn í þennan ormagarð. Þeir spurðust fyrir um hvort mér væri ekki fyrir bestu að draga mig til baka. Það myndi um leið létta þungum krossi af þeirra herðum.Miðvikudaginn, 28. ágúst: Þá var mér tilkynnt að forráðamenn stjórnmálafræðideildar hefðu gefist upp fyrir hótun um að það yrði enginn starfsfriður í deildinni nema ráðning mín yrði dregin til baka. Hagsmunir háskólans yrðu að sitja í fyrirrúmi. Þeir væru því nauðbeygðir að fórna grundvallarreglum fyrir starfsfriðinn – líkt og í München forðum.Fimmtudagur, 29. ágúst: Forseti Félagsvísindasviðs boðaði mig til fundar á skrifstofu sinni í Gimli. Fundinn sátu líka deildarforseti stjórnmálafræðideildar og Dr. Baldur Þórhallsson prófessor. Á fundinum var allt það staðfest sem að framan er sagt. Deildarforseti stjórnmálafræðideildar sagði að þessi niðurstaða gengi gegn öllu því sem hann stæði fyrir og að hann „óaði við“ því hugarfari ofstækis sem að baki byggi. Forseti Félagsvísindasviðs bað mig að sýna því skilning að ófriðarástand ætti sér langa sögu þar innan veggja. Þær öldur yrði að lægja með lagni. Það væri fullreynt að starfsfriður yrði ekki tryggður nema ég yrði gerður afturreka. Sorry. Að lokum reifaði hann útgönguleið þeirra félaga frá allri ábyrgð, með því að þetta hefði verið einkamál Baldurs Þórhallssonar. Þar sem Baldur tæki á sig sökina væru allir lausir mála.Dómstóll götunnar Þetta eru hinar raunverulegu ástæður að baki ákvörðunar forráðamanna háskólans, eins og þær voru skýrðar fyrir mér. Ég fór fram á tvennt á þessum fundi: Að háskólinn skýrði opinberlega satt og rétt frá gangi mála um ástæður þess að ráðning mín væri fyrirvaralaust afturkölluð. Ef háskólinn skýldi sér á bak við þögn í þessu máli jafngilti það því að háskólinn legði blessun sína yfir þær ávirðingar sem á mig væru bornar – í verki, ef ekki í orði. Og að ég fengi í hendur ákæruskjal kynjafræði til deildarforseta svo að ég gæti a.m.k. varið hendur mínar. Um það voru höfð góð orð. Við hvorugt hefur verið staðið. Hver er niðurstaða þessa máls? Það er mikill misskilningur ef menn halda að þetta snúist bara um mína persónu eða um vítaverða stjórnunarhætti innan háskólans. Þetta mál snýst um grundvallarmannréttindi í réttarríki. Ef maður er borinn sökum sem þykja refsiverð að lögum er það dómstóla að skera úr. Að því er varðar þær ávirðingar sem á mig hafa verið bornar hefur ákæruvaldið kveðið upp sinn úrskurð í tvígang. Kærumálum hefur verið vísað frá, þar sem ekki séu efni til sakfellingar. Í þessu tilviki hefur dómstóll götunnar hins vegar kveðið upp annan dóm, studdur af pólitískum öfgahópum og óvönduðum fjölmiðlum. Þeim sem vilja kynna sér staðreyndir málsins eins og þær liggja fyrir skal bent á heimasíðu mína – www.jbh.is – og þá sérstaklega tvær greinar: „Að gera hreint fyrirsínum dyrum“ (16.3.12) og „Hvers vegna allt þetta hatur? –Fjölskylduböl í fjölmiðlum“ (30.04.12). Þarna er hvergi undan því vikist að ræða hina siðferðilegu hlið málsins. Háskóli Íslands er æðsta menntastofnun þjóðarinnar. Lagadeild háskólans má lýsa sem uppeldisstöð réttarríkisins. Þeir sem útskrifast úr lagadeild skipa síðar sæti dómara í réttarríkinu. Það er því ekki fjarri lagi að háskólanum sé ætlað að standa vörð um þá grundvallarreglu réttarríkisins að allir skuli teljast saklausir uns sekt hefur verið sönnuð með dómi. Með framgöngu sinni í þessu máli hafa forráðamenn Háskóla Íslands í verki lagt blessun sína yfir dómstól götunnar; fórnað varðstöðu um grundvallarreglur réttarríkisins undir hótun um að ella logi ófriðareldar ofstækis og fordóma þar innan dyra. Ég hef á tiltölulega stuttum stjórnmálaferli oft sætt harðri gagnrýni í fjölmiðlum. Mér hafa borist ófá bréf, ýmist nafnlaus eða undir nafni, þar sem á mig eru bornar vammir og skammir – í einstaka tilvikum líflátshótanir. Hingað til hef ég látið þetta sem vind um eyru þjóta. Ég hef hneigst til að kenna um óþroskaðri umræðuhefð, þar sem mannorðsmorð – jafnvel landráðabrigsl – eru á köflum daglegt brauð. Ég hef aldrei höfðað meiðyrðamál, þótt oft hafi verið ærin ástæða til. Ég hef litið á þessa óþroskuðu umræðuhefð sem fæðingarhríðir okkar unga lýðveldis og fylgifisk tjáningarfrelsisins, sem bæri að standa vörð um. En þegar svo er komið að Háskóli Íslands vegur í verki að rótum réttarríkisins – og er reiðubúinn að fórna mannréttindum einstaklinga undir hótun um rof á starfsfriði – þá er nóg komið. Þá heggur sá sem hlífa skyldi. Ég hef því ákveðið að fela lögmanni mínum að undirbúa málshöfðun á hendur Háskóla Íslands. Á það verður látið reyna hvort dómstóll götunnar komist framvegis upp með að ráða gangi mála við háskólann. Eða hvort standa beri vörð um réttarríkið og grundvallarmannréttindi. (Höf. hefur verið ráðinn gistiprófessor við Háskólann í Tartu í Eistlandi á ári komanda). Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Jón Baldvin Hannibalsson Mest lesið Nú vandast valið Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun The man who would be king Ian McDonald Skoðun Ókostir forsetaframbjóðandans Katrínar Jakobsdóttur Alfreð Sturla Böðvarsson Skoðun Jarðakaup í nýjum tilgangi Halla Hrund Logadóttir Skoðun Eru orkumálin að fara úr böndunum? Jónas Guðmundsson Skoðun Borgar þú 65 prósent skatt af þínum tekjum? Guðfinnur Sigurvinsson Skoðun Af auðvaldsmönnum og undirlægjuhætti Ester Hilmarsdóttir Skoðun Forsetaframboð í Fellini stíl Stefán Ólafsson Skoðun Norska veiðistöðin Friðrik Erlingsson Skoðun Brúarsmið á Bessastaði Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Nú vandast valið Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun The man who would be king Ian McDonald skrifar Skoðun Umhverfisávinningur þess að þrifta Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ókostir forsetaframbjóðandans Katrínar Jakobsdóttur Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Eru orkumálin að fara úr böndunum? Jónas Guðmundsson skrifar Skoðun Skipulagsmál og uppbygging í Árborg Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Ég kýs… Gísli Ásgeirsson skrifar Skoðun Forsetaframboð í Fellini stíl Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Borgar þú 65 prósent skatt af þínum tekjum? Guðfinnur Sigurvinsson skrifar Skoðun Brúarsmið á Bessastaði Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Nú getum við brotið blað Ragnheiður Davíðsdóttir skrifar Skoðun Við þurfum loftslagsaðgerðir, ekki grænþvott Andrés Ingi Jónsson skrifar Skoðun Af hverju bara hálft skref áfram? Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Baldur í þágu mannúðar og samfélags Anna María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvar er Reykjavegur? Ari Trausti Guðmundsson skrifar Skoðun Af auðvaldsmönnum og undirlægjuhætti Ester Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Hafðu áhrif á líf barna Ída Björg Unnarsdóttir skrifar Skoðun Stórbætum samgöngur Logi Einarsson skrifar Skoðun Norska veiðistöðin Friðrik Erlingsson skrifar Skoðun Köllum það réttu nafni: Fordóma Derek Terell Allen skrifar Skoðun Ótrúverðugt plan að annars góðum markmiðum Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Formleg uppgjöf Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Örlætisgerningur Vilhjálmur H. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Fjármunum veitt þangað sem neyðin er mest Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Sjálfbær framtíð Vestfjarða Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir,Aðalsteinn Óskarsson skrifar Skoðun Burt með pólitík á Bessastöðum Kristmundur Carter skrifar Skoðun Náttúran njóti vafans, ótímabundið Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Íþróttir fyrir öll, jöfnum og bætum leikinn Hólmfríður Sigþórsdóttir,Anna Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Nýr „loftslagsvænn“ iðnaður - neikvæð áhrif á lífríki og fiskveiðar Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun „Almennings“ samgöngur? Bragi Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
„
Skoðun Íþróttir fyrir öll, jöfnum og bætum leikinn Hólmfríður Sigþórsdóttir,Anna Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Nýr „loftslagsvænn“ iðnaður - neikvæð áhrif á lífríki og fiskveiðar Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir skrifar