Góður gangur hjá Iceland Foods Óli Kristján Ármannsson skrifar 14. júní 2013 07:00 Macolm Walker í einni verslana Iceland Food. Þar var 400 nýjum frosnum vörum bætt í vörulínuna á nýliðnu rekstrarári.
Sala Iceland Foods jókst um eitt prósent, eða sem nemur 2,64 milljörðum punda á rekstrarárinu sem lauk í marslok. Upphæðin nemur um 498 milljörðum króna. Í umfjöllun European Supermarket Magazine (ESM) kemur fram að leiðréttur hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) hafi aukist um 0,6 prósent í 226,3 milljónir punda, eða tæpa 42,7 milljarða króna. Iceland Food samstæðan opnaði 36 nýjar Iceland verslanir á tímabilinu og lokaði þremur. Í árslok voru því reknar 790 verslanir undir merkjum Iceland Foods. „Á því sem eftir lifir árinu 2013 er áætlað að 40 nýjar Iceland verslanir verði opnaðar til viðbótar, auk þess sem úrval í netverslun verði aukið,“ segir í umfjöllun esmmagazine.com. „Við ætlum að gefa viðskiptavinum okkar kost á að kaupa inn á netinu og byggjum þar á góðum árangri í tilraunum með þjónustuna í völdum verslunum sem hófust í síðasta mánuði,“ er haft eftir Malcolm Walker, eiganda og forstjóra fyrirtækisins.
Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira