Ástandið á Spáni versnar enn Magnús Halldórsson skrifar 30. janúar 2013 10:54 Bankia, stærsti banki Spánar, hefur staðið höllum fæti undanfarin ár og þurft mikinn stuðning frá ríkissjóði Spánar og Seðlabanka Evrópu.
Landsframleiðsla á Spáni dróst saman á þriðja ársfjórðungi ársins í fyrra um 0,7 prósent frá ársfjórðunginum á undan, og um 1,8 prósent miðað við sama tímabil í fyrra. Þá sýna nýjustu tölur um smásöluverslun á Spáni að hún var mun verri í desember á síðasta ári heldur en árið 2011, en smásalan dróst saman um 10,7 prósent milli ára, að því er segir í frétt á vef Wall Street Journal í dag. Staða efnahagsmála á Spáni er afar erfið þessi misserin, en mesti vandinn er mikið atvinnuleysi. Það mælist nú 26 prósent, samkvæmt tölum Hagstofu Evrópusambandsins, Eurostat, en hvergi í Evrópu er atvinnuleysi meira. Sjá má frétt Wall Street Journal um þessi mál hér.
Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira