Öryrki stefnir Reykjavíkurborg 27. janúar 2013 20:01
Öryrki hefur stefnt Reykjavíkurborg og telur að sér sé mismunað vegna búsetu. Um er að ræða konu sem leigir hjá hússjóði Öryrkjabandalagsins og fær þess vegna ekki sérstakar húsaleigubætur. Þetta er annað prófmálið sem Öryrkjabandalagið er með í gangi. Öryrkjabandalag Íslands er fjárhagslegur stuðningsaðili konunnar, Guðrúnar Birnu Smáradóttur, í málinu. „Þetta snýst um það að Reykjavíkurborg hefur neitað fólki sem leigir hjá félagasamtökum eins og Brynju hússjóði, Sjálfsbjörg, SEM, að þeir fá ekki sérstakar húsaleigubætur," segir Guðmundur Magnússon formaður Öryrkjabandalagsins. Samkvæmt reglum Reykjavíkurborgar geta aðeins þeir sem leigja á almennum markaði, eða hjá Félagsbústöðum hf. átt rétt á þessum sérstöku húsaleigubótum, og fékk Guðrún þær áður en hún flutti ínn í húsnæði hússjóðs Öryrkjabandalagsins. „við erum búin að vera að vasast í þessu lengi hjá Örykjabandalaginu. Kærðum til velferðarráðuneytisins og þaðan kom úrskurður og bréf til Reykjavíkurborgar fyrir rúmum tveimur árum síðan að þeir gætu ekki staðið á þessu af jafnræðisreglum. Það hefur ekkert gerst síðan," segir Guðmundur. Síðan þá hefur Öryrkjabandalagið leitað að heppilegum kandídat til að fara í mál. „Nú er þessi kona komin. Við erum með þetta sem prófmál. Við viljum að það verði gengið tilbaka og helst greitt afturvirkt finnst okkur." Þegar hefur verið þingfest annað prófmál sem Öryrkjabandalagið stendur að baki. Þar er um að ræð öryrkja sem stefndi íslenska ríkinu og Reykjavíkurborg vegna vangoldinna bóta, en mánaðarlegar örorkubætur þyrftu að vera tvöfalt hærri til að ná almennu neysluviðmiði sem ríkið sjálft hefur sett.
Mest lesið Löggan keyrði mann í stéttina og skutlaði hrákapoka um höfuð hans Innlent „Ég er komin með gjörsamlega nóg af þessu“ Innlent Rífa íþróttahúsið Innlent Dæmi um að ökumenn slökkvi á skynjara sem bjargaði lífi hans Innlent Heilsaði upp á meint fórnarlömb sín Innlent Tæplega fimmtíu leigubílstjórar eiga von á kæru Innlent McKellen heill á húfi Erlent Tæplega tvö hundruð úr sömu fjölskyldu drepin Erlent Gagnrýnir viðbúnað lögreglu og takmarkað aðgengi almennings að Austurvelli Innlent Samfylkingin ætli ekki að „bara vera með upphrópanir“ Innlent Fleiri fréttir Öryggisbúnaður ekki til staðar í tugum leigubíla Fyrsti rampurinn vígður á Vestfjörðum í Römpum upp Ísland Heilsaði upp á meint fórnarlömb sín Tæplega fimmtíu leigubílstjórar eiga von á kæru Fjármálaráðherra hafi slátrað eigin samgönguáætlun Dæmi um að ökumenn slökkvi á skynjara sem bjargaði lífi hans Eldgosið stöðugt og gosmengun til norðurs Íslenskir unglingar undir pari í skapandi hugsun hins daglega lífs Aukin bjartsýni vegna hitaveituholunnar á Ísafirði Gagnrýnir viðbúnað lögreglu og takmarkað aðgengi almennings að Austurvelli Vantrauststillaga lögð fram Sá sæng sína upp reidda „Þetta setur okkur í svolítið einkennilega stöðu“ Stjórnarflokkarnir ekki enn komnir með forgangslista mála Umdeild öryggisgæsla á Austurvelli og deilt um bílastæði á flugvöllum Bein útsending: Kynna aðgerðir gegn gullhúðun Löggan keyrði mann í stéttina og skutlaði hrákapoka um höfuð hans Án rafmagns í tuttugu mínútur „Ég er komin með gjörsamlega nóg af þessu“ Rífa íþróttahúsið Samfylkingin ætli ekki að „bara vera með upphrópanir“ Brutust inn en gripu í tómt Hættulegar bikblæðingar víða á vegum landsins Kringlan lokuð til fimmtudags Uppsagnir hjá Icelandair og borgarstjóri í Parísarhjóli Borgarstjóri fór fyrstu ferð í nýju parísarhjóli Sextán sæmdir heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu Ósammála Hæstarétti og telja brot Brynjars nauðgun Hvergi betra að búa en á Íslandi Palestínufánar í Mosfellsbæ vekja upp misgóð viðbrögð Sjá meira