Sannleikurinn: Engar konur í byrjunarliðinu gegn Króatíu Andri Þór Sturluson skrifar 19. nóvember 2013 09:54 Allt karlmenn. Jafnrétti er greinilega ekki komið lengra. „
Þetta er ekki góð niðurstaða fyrir konur en fyrst og fremst er þetta slæm niðurstaða fyrir landsliðið,“ segir Gréta Marteinsdóttir, formaður landssambands kvenna í knattspyrnu. Karlar raða sér í öll sætin í byrjunarliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu fyrir leikinn gegn Króatíu í kvöld. Auk þess er engin kona á varamannabekknum. „Það að stilla upp eingöngu körlum í byrjunarliðið getur ekki talist sigurstranglegt lið,“ segir Gréta og telur að valið á liðinu séu mikil vonbrigði fyrir knattspyrnukonur. „Þetta er ekki liðinu til framdráttar. Það eru margar öflugar konur sem komu til greina og það kemur mér á óvart að reynslumikill landsliðsþjálfari eins og Lars Lagerbäck skuli falla í þessa gryfju. Þetta er mikið áhyggjuefni fyrir konur í fótbolta. Þetta er ekki skref í rétta átt,“ segir hún.Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu en þar eru konur í meirihluta.
Harmageddon Mest lesið Ísland í röngu tímabelti Harmageddon Metallica ætlar að selja riff á Ebay Harmageddon Segir Jóhönnu þurfa að iðrast og snúa frá villu síns vegar Harmageddon Samkynhneigðir Aríar taka höndum saman Harmageddon Strangheiðarlegur og hafður fyrir rangri sök Harmageddon Kontinuum á toppi Pepsi Max lista X977 Harmageddon Sannleikurinn: Guð þakkaði Sigmundi og Bjarna sérstaklega í árlegu jólaávarpi sínu Harmageddon Gera á torgum það sem nasistar hefðu reynt að fela Harmageddon Púlsinn 18.ágúst 2014 Harmageddon Gítarleikari INXS missti puttann í slysi Harmageddon