Einkavæðingarblús Þórður Snær Júlíusson skrifar 28. janúar 2013 06:00 Fréttablaðið greindi frá því á föstudag að fjárhagsleg endurskipulagning Skipta, móðurfélags Símans, Skjásins og Mílu, væri hafin. Félagið skuldar nú um 62 milljarða króna og er langstærstur hluti þess vegna risavaxins sambankaláns sem félagið tók árið 2005 þegar það keypti 98,8 prósenta hlut í Símanum af íslenska ríkinu. Söluverðið var 66,7 milljarðar króna. Eigendur Skipta þá voru Exista þeirra Bakkavararbræðra (sem átti 45 prósent), Kaupþing og fylgihnettir, MP Banki og nokkrir lífeyrissjóðir. Allar eignir Skipta voru settar að veði fyrir láninu. Þegar ríkið seldi Símann var það stærsta einkavæðing Íslandssögunnar. Fljótandi á erlendu lánsfé greiddu hinir nýju eigendur níu sinnum rekstrarhagnað Símans (EBITDA) fyrir. Kaupverðið var mun hærra en í sambærilegum viðskiptum erlendis á þeim tíma. Í tilkynningu forsætisráðuneytisins um söluna kom fram að nýjum eigendum væri skylt að uppfylla skilyrði ríkisins um að enginn einn einstakur aðili eignaðist stærri hlut í Símanum en 45 prósent fram að skráningu félagsins og að ?ekki minna en 30% af heildarhlutafé félagsins verði af hálfu kaupanda boðin almenningi og öðrum fjárfestum til kaups, í síðasta lagi fyrir árslok 2007?. Ári síðar gáfu Skipti út óveðtryggðan skuldabréfaflokk sem meðal annars lífeyrissjóðir keyptu upp. Hann stendur nú í um 22 milljörðum króna. Tæpur helmingur söluvandvirðisins var notaður til að borga niður skuldir ríkisins. Afganginn átti síðan meðal annars að nota í að byggja hátæknisjúkrahús (18 milljarðar) og leggja Sundabraut (átta milljarðar). Lítið varð þó úr notkun þessa fjár í umrædd verkefni. Nýju eigendurnir höfðu síðan engan sérstakan áhuga á því að setja Skipti á markað þegar að því kom síðla árs 2007. Eftir hlutafjárútboð gerði Exista öllum eigendum yfirtökutilboð, sem var samþykkt að mestu, og afskráði Skipti í kjölfarið. Í tilkynningu kom fram að Exista teldi ?ekki vera grundvöll fyrir eðlilega verðmyndun með hlutabréf Skipta á markaði í ljósi niðurstöðu nýafstaðins hlutafjárútboðs og þeirra óvenjulega erfiðu markaðsaðstæðna sem nú ríkja?. Greitt var fyrir með nýju hlutafé í Existu, sem síðan varð verðlaust þegar nauðasamningur í Existu var samþykktur í september 2010. Í þessum viðskiptum gáfu meðal annars fjórir lífeyrissjóðir eftir um fimmtungshlut í Skiptum fyrir hlutabréf í Existu. Lengi hefur legið fyrir að endurskipuleggja þarf skuldir Skipta. Óveðtryggðir kröfuhafar, skuldabréfaeigendur og Arion banki þurfa að breyta kröfum sínum í hlutafé vilji þeir fá eitthvað til baka. Steinn Logi Björnsson, forstjóri Skipta, sagði við Fréttablaðið í ágúst að endurskipulagning væri ?mjög aðkallandi[?]Skuldastaðan hefur áhrif á samkeppnishæfni okkar og við getum ekki fjárfest eins og við þurfum?. Einkavæðingarskuldirnar eru því baggi á samstæðunni. Þegar horft er yfir stærstu einkavæðingar sem farið hafa fram á Íslandi, bankasölurnar og sölu Símans, er ljóst að þær hafa allar verið dæmalaust klúður sem hafa valdið ríkinu og lífeyrissjóðum landsins meira tjóni en ágóða. Það er þó ekki vegna þess að ríkið sé eitthvað betur til þess fallið að eiga fyrirtæki en einkaaðilar. Svo er alls ekki. Ástæðan er mun frekar sú að stjórnvöld ákváðu að selja aðilum sem vissu ekkert um rekstur viðkomandi fyrirtækja, annars vegar vegna valdabaráttu og hins vegar vegna græðgi. Það má ekki endurtaka sig þegar ríkið selur þær eignir sem hafa lent aftur í fangi þess eftir hrun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórður Snær Júlíusson Mest lesið Gríðarlegur velferðarábati með upptöku evru Dagur B. Eggertsson Skoðun Ég hélt að ég væri bara óvenju hrætt foreldri Heiðrún V. Ingudóttir Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson Skoðun Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson Skoðun Við þurfum ekki að kaupa gervigreindarfullveldið að utan Hafsteinn Einarsson Skoðun Neyðin kennir nöktum Íslendingi að spinna Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir Skoðun
Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson Skoðun
Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir Skoðun
Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson Skoðun
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun
Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson Skoðun
Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir Skoðun
Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson Skoðun
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun