Í víngeiranum stefnir í óefni en samkvæmt rannsókn frá Morgan Stanley Research mun framboð á víni ekki mæta eftirspurn á næstu árum.
Á síðasta ári nægði vínframleiðsla rétt svo til þess að anna þeirri eftirspurn sem var til staðar á þeim tíma. Ef við eftirspurnina bætist svo það magn af víni sem notað er til þess að búa til blandaða víndrykki vantaði í raun um 300 milljón kassa af víni til þess að anna eftirspurn.
Eins og staðan er núna stefnir í það að heimshörgull verði á víni og það bráðlega. „Gögnin sýna að það geti orðið ónægt framboð á víni til þess að mæta eftirspurn á komandi árum,“ segir í rannsókninni.
Vandamálið er í raun tvíþætt. Annars vegar hefur neysla á víni aukist hratt síðan seint á tíunda áratugnum. Árið 1996 var neysla heimsbyggðarinnar á víni 2,400 milljónir í kössum talið og árið 2008 náði vínneysla hámarki. Það ár voru kassarnir af víni sem drukkið var 2800 milljón talsins. Sérstaklega hefur neysla aukist í Bandaríkjunum og Kína.
Bandaríkin, sem drekka 12 prósent af öllu víni í heiminum, hafa tvöfaldað sína neyslu síðan í byrjun aldarinnar og sömu sögu má segja um Kína. Þar hefur neyslan tvöfaldast tvisvar sinnum á síðustu 5 árum. Hins vegar hefur vínframleiðsla ekki náð að halda í við aukna eftirspurn.
Afköst hafa minnkað jafnt og þétt í mörgum af mest velmegandi vínhéruðum heims. Síðan árið 2004 hafa afköst minnkað um 500 milljón kassa framleidda á ári. Í þeim þremur löndum sem framleiða hvað mest vín á ári hefur landsvæði sem helgað er ræktun vínviðar minnkað síðan árið 2001.
Þó eru góðu fréttirnar þær að uppskera ársins 2013 var einstaklega góð miðað við 2012.
Stefnir í vínþurrð í heiminum
Jón Júlíus Karlsson skrifar

Mest lesið


Birta stendur frammi fyrir 1,5 milljarða tapi á Play
Viðskipti innlent

Ósátt með samráðsleysi stjórnvalda
Viðskipti innlent



Samkaup segja upp tuttugu og tveimur
Viðskipti innlent


Kalla inn geislavirka límmiða
Neytendur

Öryggismyndavélar á grenndarstöðvum eigi að sporna við sóðaskap
Viðskipti innlent

Atvinnuleysi minnkar lítillega
Viðskipti innlent