Raf- og taktvæddar Árstíðir Trausti Júlíusson skrifar 7. mars 2013 06:00
Árstíðir er ein af þessum harðduglegu íslensku hljómsveitum sem fjármagna plöturnar sínar sjálfar og spila úti um allar trissur. Tvíeind er þriðja plata hljómsveitarinnar sem var stofnuð 2008, en hún hefur þegar spilað á tónleikum mjög víða í Evrópu, auk þess sem fyrri plöturnar hennar tvær voru endurútgefnar af þýska fyrirtækinu Beste Unterhaltung í fyrra. Tvíeind er EP-plata með endurgerðum af fimm lögum af annarri plötunni, Svefns og vöku skil. Platan kom upphaflega bara út stafrænt og var seld á Gogoyoko, en vegna mikils áhuga var ákveðið að gefa hana út á föstu formi líka. Endurgerðirnar á Tvíeind eru nokkuð ólíkar. Fjórar þeirra eru "remix", en ein er alveg ný útgáfa. Tvö laganna fá trommu- & bassayfirhalningu, annars vegar Ljóð í sand í meðförum Danans Sakaris og hins vegar Lost In You sem Rússinn Veell endurgerir. Ruxpin (Days & Nights) og Kippi kanínus (Shades) vinna báðir mjög vel úr stemningunni í frumútgáfunum í sínum endurgerðum þó að þær séu ólíkar. Loks er það hljómsveitin Iamthemorning frá St. Pétursborg, en hún gerir alveg nýja útgáfu af laginu Á meðan jörðin sefur. Söngkona sveitarinnar syngur lagið á íslensku. Tónlist Árstíða er undir venjulegum kringumstæðum sambland af órafmögnuðu indískotnu þjóðlagapoppi og klassík. Breytingin hér er þess vegna töluverð. Það er búið að raf- og taktvæða tónlistina. Þó að endurgerðirnar séu ólíkar þá eru þær allar vel heppnaðar og bæta miklu við frumgerðirnar. Fín plata.Niðurstaða: Fimm áhugaverðar endurgerðir af tónlist Árstíða.Árstíðir er ein af þessum harðduglegu íslensku hljómsveitum sem fjármagna plöturnar sínar sjálfar og spila úti um allar trissur.
Gagnrýni Mest lesið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Fleiri fréttir Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum John Grant tók Eldborg með áhlaupi — en hjartað vann stríðið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Enginn venjulegur sjötugur maður Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Sjá meira