Harmageddon

Sannleikurinn: Ekki hægt að auglýsa stöðu forstjóra Landspítalans vegna fjárskorts

Andri Þór Sturluson skrifar
Fráfarandi forstjóri ætlar að sitja heima og spila GTA V og FIFA á meðan hann íhugar næstu skref.
Fráfarandi forstjóri ætlar að sitja heima og spila GTA V og FIFA á meðan hann íhugar næstu skref.
Björn Zoëga  sagði upp starfi sínu sem forstjóri Landspítalans nú fyrir helgi eftir að formenn ríkisstjórnaflokkanna gerðu honum það ljóst að heilsa landsmanna skiptir minna máli en fjárhagsleg heilsa auðmanna.

Heilbrigðisráðherra ætlaði að auglýsa stöðuna lausa til umsóknar í Morgunblaðinu í dag en auglýsingin fékkst ekki birt þar sem greiðslukorti ráðuneytisins var synjað þegar greiða átti fyrir birtinguna.

Á vef spítalans útskýrir fráfarandi forstjóri afsögn sína:

„Ég hef ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Landspítala eða Spítanic, eins og ég kalla þetta sökkvandi skip. Ég hef tilkynnt heilbrigðisráðherra að ég ætla ekki lengur að bera ábyrgð á niðurskurði innan spítalans og þeirri lífshættu sem hann skapar fólki svo hægt sé að draga úr sköttum og gjöldum á stórefnafólk.  Ég afhenti heilbrigðisráðherra uppsagnarbréfið nú fyrir stundu, vonandi stendur það í honum.“

Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra eða Dr. Dauði eins og hann er kallaður innan Landspítalans, segir að vegna þess að ekki reyndist unnt að auglýsa stöðu forstjóra Landspítalans hafi hann ákveðið í sparnaðarskyni að ráða einhvern góðan félaga sinn í stöðuna. Ráðherra birti myndaalbúm með nokkrum kandídötum í starfið í lokaðri grúbbu Sjálfstæðisflokksins á Facebook og mun sá sem fær flest "Like" fá þetta eftirsótta niðurskurðargigg á spítalanum.

Uppfært 12:24: Eini maðurinn sem er nógu snarklikkaður til að vilja taka við sem forstjóri Landspítalans reyndist geðlæknir.





Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu  en hún er eign þvottahúss Landspítalans.








×