Myndirnar er ansi óhugnanlegar þegar hugsað er til þess að þær eru teknar örfáum mínútum eftir að Breivik var handtekin í kjölfar fjöldamorðanna í Osló og Útey.
Á þeim tíma var ekki vitað hvort Breivik ætti sér einhverja samverkamenn eða hvort fleiri sprengjum hefði verið komið fyrir í Osló eða annarstaðar. Þess vegna taldi norska lögreglan mikilvægt að hefja yfirheyrslur strax á staðnum.
Breivik er fáránlega aflsappaður að sjá á myndunum miðað við að hafa myrt 77 manneskjur skömmu áður. Hann situr á bólstruðum tréstól inni á skrifstofu aðalbyggingarinnar í Útey þar sem hann var yfirheyrður fram á morgun næsta dag.

Enginn tími gafst til þess að útvega lögmann fyrir Breivik til þess að vera viðstaddur yfirheyrslurnar á þessari stundu en hann gaf samþykki sitt fyrir því að vera yfirheyrður án hans til að byrja með. Fyrir frekari upplýsingar um hinn meinta þriðja hryðjuverkahóp lagði Breivik fram ákveðin kröfulista og sagði lögreglumönnunum að þeir gætu hugsanlega bjargað lífi 300 manns ef þeir myndu mæta kröfum hans.
Breivik fór sérstaklega fram á það að hann yrði ekki ljósmyndaður á skrifstofunni en lögreglan tók myndir engu að síður. Nauðsynlegt þótti að útbúnaður Breiviks yrði skjalfestur með myndum en hann hafði klætt sig upp í heimatilbúinn lögreglubúning til þess að villa á sér heimildir.