Ballmer alltaf verið umdeildur Þorgils Jónsson skrifar 28. ágúst 2013 13:11 Microsoft undir stjórn Steves Ballmer þótti ekki hafa farnast vel í slagnum um nýjungar í tæknigeiranum, sérstaklega hvað varðar snjallsíma og spjaldtölvur. Þrátt fyrir að nýjustu afurðir fyrirtækisins hafi fengið ágætis viðtökur hefur þeim ekki tekist að ógna Apple og Google í þeim efnum. NordicPhotos/AFP
Tímamót urðu hjá tæknirisanum Microsoft á dögunum þegar forstjórinn Steve Ballmer tilkynnti að hann hygðist segja upp starfi sínu. Hópur undir forystu stjórnarformannsins Bill Gates hefur hafið leit ð eftirmanni Ballmers, sem stefnir að því að setjast í helgan stein innan árs. „Það er aldrei fullkominn tímapunktur fyrir svona breytingar en mér finnst þetta vera rétti tíminn,“ sagði Ballmer í yfirlýsingu. Ballmer hefur sætt töluverðri gagnrýni síðustu ár þar sem honum er kennt um að Microsoft hafi setið eftir í þróuninni, meðal annars hvað varðar snjallsíma og spjaldtölvur. Margir leiða meðal annars líkum að því að hluthafar í Microsoft hafi haft sitthvað að að segja um að Ballmer stígi til hliðar. Strax eftir að hann tilkynnti um áform sín hækkaði hlutabréfaverð í Microsoft um nær tíu prósent.Ballmer var ráðinn til Microsoft árið 1980 en hann hafði þá þekkt Gates um árabil. Ballmer tók svo við stjórnartaumunum þegar Gates steig til hliðar í byrjun árs 2000. Síðan þá hefur Ballmer verið umdeildur í starfi. Microsoft hefur í gegnum árin skilað miklum tekjum af forritum eins og Windows og Office-pakkanum og á síðustu árum hefur þeim orðið ágengt í fyrirtækjaþjónustu í gegnum skýið, en gengi hlutabréfa í fyrirtækinu hefur fallið verulega. Gengi Microsoft kemur sérstaklega illa út í samanburði við mörg önnur stærri tæknifyrirtæki, sérstaklega Google og Apple. Í hinum gríðarmikilvæga geira sem snjallsímar og spjaldtölvur eru hefur Microsoft verið að elta forystusauði frekar en að leiða hjörðina. Annað atriði sem dregið hefur verið upp Ballmer til hnjóðs er mannauðsstefnan sem rekin er undir hans stjórn, svokölluð stack ranking. Það felur í sér að í hverri einingu innan fyrirtækisins er starfsfólk flokkað eftir getu. Á grundvelli þeirrar flokkunar voru launa- og stöðuhækkanir, sem olli mikilli misklíð meðal starfsmanna og varð til þess að hæfustu starfsmennirnir veigruðu sér við að vinna með öðru hæfileikafólki vegna þess að það gæti skaðað hagsmuni þeirra. Fróðlegt verður að sjá hverju fram vindur hjá Microsoft, sem er þrátt fyrir allt eitt stærsta og mikilvægasta fyrirtækið í tæknigeiranum. Í Financial Times er haft eftir manni sem þekkir vel til að sennilega sé best að sækja nýjan forvígismann út fyrir raðir Microsoft; einhvern með skýra framtíðarsýn, frekar en innanbúðarmann sem mun stýra risanum á fallandi fæti.
Mest lesið Ófremdarástand í bílastæðamálum aðhlátursefni Neytendur Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Viðskipti innlent Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Viðskipti innlent Nýtt gjald á bíómiða í vefsölu Neytendur Segir leigusala hækka leigu í takt við skerðingu Neytendur Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Viðskipti innlent Leigja frekar en að kaupa: „Ég þarf ekki að eiga allt“ Atvinnulíf 54 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Viðskipti innlent Grímur hættir hjá Bláa lóninu og Sigríður Margrét tekur við Viðskipti innlent Fólk geti nýtt séreignarsparnaðinn seinna á árinu Neytendur Fleiri fréttir Í hóp fimm milljarðamæringa úr tónlistarsenunni Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Ekkert verður úr TikTok-banni með nýjum samningi Hæstu stýrivextir í þrjátíu ár Höfnuðu yfirtökutilboði Paramount Messenger-forritið heyrir sögunni til Lofar að koma böndum á CNN Reyna fjandsamlega yfirtöku á Warner Bros. Kaup Netflix á hluta Warner Bros. gætu reynst „vandamál“ ESB sektar samfélagsmiðil Musk um milljarða Google birtir lista yfir vinsælustu leitarorðin Netflix í viðræðum um kaup á HBO frá Warner Bros Hringir viðvörunarbjöllum vegna samkeppni frá Google „Brunaútsala“ á hlutabréfum eftir eldsvoðann í Hong Kong Sjá meira