Viðskipti erlent

Netflix tapar nær 1.800 myndum og þáttum

Afþreyingarveitan Netflix mun tapa rétt tæplega 1.800 kvikmyndum og sjónvarpsþáttum í þessum mánuði. Ástæðan er að samningar sem Netflix hefur við MGM, Universal og Warner Bros. renna út fyrir mánaðarmótin.

Fjallað er um málið á vefsíðunni The Verge. Þar segir að í fyrstu mun þetta aðeins hafa áhrif á Bandaríkjamarkaði. Raunar er haft eftir Joris Evers talsmanni Netflix að málið hafi engin áhrif á þjónustu veitunnar á alþjóðavettvangi utan Bandaríkjanna.

Fram kemur að fyrrgreind kvikmyndafélög hafa ekki í hyggju að endurnýja samninga sína við Netflix. Það þýðir meðal annars að James Bond myndirnar detta út hjá Netflix sem og 15 þáttaraðir af South Park.

Í öðrum miðlum hefur komið fram að ástæðan fyrir því að samningar við Netflix verða ekki endurnýjaðir eru að kvikmyndafélögin vilja koma á fót eigin afþreyingarveitum í stíl við Netflix. Þannig hefur Warner Bros.  komið á fót Warner Instant í þeim tilgangi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×