Búðarþjófur ráðinn til verslunar eftir að hafa rænt hana tuttugu sinnum 18. apríl 2013 07:40
Verslanakeðjan One Stop á Bretlandseyjum hefur ráðið búðarþjóf í vinnu eftir að hann hafði rænt eina af verslunum keðjunnar í Sunderland tuttugu sinnum. Alls hafði þessi þjófur kostað One Stop jafnvirði yfir sex milljónir króna. Í frétt um málið í breska blaðinu The Sun segir að þjófurinn sem hér um ræðir, hinn rúmlega fertugi Kevin Bates, hafi verið orðinn sérfræðingur í öryggisráðstöfunum One Stop eftir alla þessa þjófnaði. Eftir að hann var gripinn síðast með fulla vasa af vörum í Sunderland s.l. haust skrifaði hann One Stop bréf og baðst afsökunar á athæfi sínu. Jafnframt bað hann í hálfkæringi um starf hjá verslunarkeðjunni. One Stop tók hann á orðinu og taldi að hann gæti komið að góðum notum við að endurbæta þjófavarnir sínar. Sá böggull fylgir skammrifi fyrir One Stop að Kevin Bates á eftir að afplána megnið af nýlegum fjögurra ára fangelsisdómi sínum. Hann verður því One Stop ekki innanhandar í bráð.
Mest lesið Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Himneskt ei meir Viðskipti innlent Kaupa CCP aftur frá Kóreu Viðskipti innlent Gluggaþvottur og þakrennuhreinsun fyrir sumarið Samstarf Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Viðskipti innlent Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira