Auðmannalistum ber ekki saman um fjölda milljarðamæringa 5. mars 2013 07:47
Listi Forbes tímaritsins um milljarðamæringa heimsins stangast á við nýlegan lista kínverska tímaritsins Hurun Preport um hve fjölmennir þeir séu í Asíu. Á lista Forbes eru milljarðamæringar, mælt í dollurum, enn sagðir flestir í Bandaríkjunum eða 440 talsins. Milljarðamæringar í Asíu eru hinsvegar sagðir tæplega 400 talsins. Á lista Hurun Report er sami fjöldi milljarðamæringa í Bandaríkjunum en þeir eru sagðir yfir 600 talsins í Asíu. Bæði tímaritin eru nokkuð samhljóma um að í heild séu rúmlega 1.400 milljarðamæringar til staðar í heiminum. Í Forbes segir að samlagður auður þessa fólks hafi aukist verulega milli tveggja síðustu ára. Hann var 4,6 billjarðar dollara árið 2011 en jókst í 5,4 billjarða dollara í fyrra. Flestir þessara milljarðamæringa eða tæplega þúsund þeirra hafa unnið fyrir auð sínum á eigin vegum. Tæplega 200 þeirra hafa erft auðæfi sín og í tæplega 300 tilvika er um að ræða blöndu af þessu tvennu. Þá kemur fram að kvennmönnum í þessum hópi hafi fjölgað úr 104 og í 138 á milli áranna. Mexíkaninn Carlos Slim er sem fyrr auðugasti maður heimsins en Bill Gates stofnandi Microsoft er í öðru sæti.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Norskir fjölmiðlar í hart við Meta EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Skoða að sameina Tesla og SpaceX Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Sjá meira