Fær mun meira með svartri vinnu en nemur atvinnuleysisbótunum 16. janúar 2013 06:26
Ekstra Bladet í Danmörku er komið í enn eina herferð sína gegn spillingu. Að þessu sinni beinir blaðið sjónum sínum að þeim mönnum sem vinna svart en þiggja atvinnuleysisbætur á meðan. Umfjöllun blaðsins hófst í vikunni á því að greina frá trésmiðnum Peter sem er á fullum atvinnuleysisbótum en hefur meiri tekjur en bæturnar með því að vinna svart. Peter lauk sveinsprófi í trésmíði fyrir rúmlega tveimur árum síðan. Eftir það vann hann í hálft annað ár hjá fyrirtækinu sem hann tók sveinsprófið hjá. Honum var síðan sagt upp vegna verkefnaskorts og fór á bætur. Peter segir að fljótlega hafi hann fengið mörg tilboð um svarta vinnu. Hann vinni nú svart 37 tíma á viku og fær fyrir það 26 þúsund danskar krónur á mánuði eða nærri 600.000 krónur sem er töluvert hærri upphæð en bæturnar. Hinsvegar fara atvinnuleysisbæturnar hans inn á bankareikninginn hvern mánuð og af þeim borgar hann helstu nauðsynjar í daglegu lífi sínu. Svörtu tekjurnar notar hann til að leika sér með, það er borga hluti eins og utanlandsferðir eða nýjan flatskjá. Og raunar líka til að safna í sarpinn fyrir mögru árin.
Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira