Bílar

Benz bíll Werner Gerlach sýndur í Öskju

Finnur Thorlacius skrifar
Mercedes Benz bíll Werner Gerlach
Mercedes Benz bíll Werner Gerlach
Sérstakur Mercedes-Benz klúbbur er starfræktur á Íslandi og fagnar hann 10 ára afmæli á árinu, nánar tiltekið nú um miðjan ágúst. Í tilefni afmælisins verður Mercedes-Benz klúbburinn með veglega sýningu í Öskju um helgina þar sem sýndir verða margir glæsilegir Mercedes-Benz bílar frá ýmsum tímabilum.

Af mörgum perlum á sýningunni má nefna Mercedes-Benz 290B árgerð 1937 en þessi bíll var embættisbíll Werner Gerlach, ræðismanns Þýskalands á Íslandi og líklega einn sögufrægasti bíll Íslandssögunnar.

Bíllinn er talinn hafa verið njósnabíll Þjóðverja hér á landi í síðari heimstyrjöldinni. Bíllinn er uppgerður og allur sem nýr og er í gráum litum þýska flughersins Luftwaffe. Ekki hafa fundist í honum nein framleiðslunúmer, en það staðfestir líklega að bíllinn hafi verið sérpantaður af njósnadeild þýska hersins.

Í blæju hans fannst árið 1969 þéttriðið loftnet sem bendir eindregið til þess að bíllinn hafi verið notaður sem færanleg talstöð ætluð til samskipta við kafbátaflota Þjóðverja í Norður-Atlantshafi.

,,Það eru um 250 félagar í Mercedes-Benz klúbbnum. Þetta er að sjálfsögðu afskaplega góður og virðulegur félagsskapur. Félagsmenn hafa  allir mikið dálæti á Mercedes-Benz bílum og mikill fjöldi eðalbíla frá ýmsum tímaskeiðum þýska lúxusbílaframleiðandans er í eigu félagsmanna,“ segir Garðar Lárusson, formaður Mercedes-Benz klúbbsins.

Stórstjörnusýningin í Öskju verður opin á morgun laugardag kl. 10-16 og á sunnudag kl. 12-16. Þar verða einnig frumsýndir nýir Mercedes-Benz E-Class og CLA.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×