"Bílarnir 2012 eins og Heidi Klum án barms" Birgir Þór Harðarson skrifar 13. febrúar 2012 14:30 Luca di Montezemolo segir ljóta bíla geta verið flotta ef þeir eru góðir. Vettel vonar það örugglega.
Mikil umræða hefur skapast um nýstárlega hönnun F1 bílanna í ár. Ljótur framendi, of mjó dekk og of lítill afturvængur er það sem stingur sérfræðinga sérstaklega í augun. "Þetta er eins og að ímynda sér Heidi Klum án hennar fallega afturenda og barms," lét Hans-Joachim Stuck hafa eftir sér á dögunum. "Ég vona að minnsta kosti að þeir séu hraðskreðir." Stuck ók í Formúlu 1 á 8. áratugnum og er mögulega stærsti F1 ökumaður sögunnar: Heilir 194 sm. Paul Hembery, yfirmaður kappakstursmála hjá dekkjaframleiðandanum Pirelli, hefur einnig gagnrýnt bílana og sagði þá "svínslega ljóta" (e. pig ugly). Í samtali við breska götublaðið The Sun sagði hann þetta ljóta útlit hafa fráhrindandi áhrif á nýja áhorfendur og auglýsendur. Við afhjúpun Ferrari bílsins sagði Luca di Montezemolo, forstjóri Ferrari, að ekki sé til ljótur bíll sem hefur unnið kappakstra. Paul di Resta sló líka á allar efasemdir og benti á að reglubreytingar undanfarinna ára hafa haft mikil áhrif á útlit bílanna og að það sé mjög fljótt að venjast. Hafa öll liðin sem þegar hafa frumsýnt, að McLaren undanskildu, ákveðið að sætta sig við eins konar "tröppu" fyrir aftan trjónuna. Þetta gera liðin til að forðast að lækka alla hönnun bílsins í kringum trjónuna. McLaren-liðið býr hins vegar svo vel að undanfarin ár hafa þeir hannað lægri bíla en hin liðin. Þeir skarta því ekki rótækum framenda í ár.
Formúla Mest lesið Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Handbolti Kveður Skagafjörðinn og flytur á Skagann Körfubolti Féll á lyfjaprófi rétt fyrir Ólympíuleika í heimalandinu Sport Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Enski boltinn Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Handbolti Með fleiri mörk með langskotum en Ísland og samt með sex færri leiki spilaða Handbolti Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti Handbolti Hin efnilega Emelía lánuð til Kaupmannahafnar Fótbolti Pytlick hafði enga lyst á pönnukökum í Ráðhúsinu Handbolti Stefán Ingi seldur til Hollands fyrir metverð Fótbolti Fleiri fréttir Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher F1-ökumaður gagnrýndur fyrir vanvirðingu við Schumacher Komst við er hann ræddi Schumacher Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Sjá meira