Jól

Mömmukökur bestar

Lilja Sólrún bakar mömmukökur fyrir hver jól enda eru þær uppáhaldssmákökurnar hennar. Mamma hennar bakaði þær líka alltaf þegar Lilja Sólrún var lítil.mynd/valli
Lilja Sólrún bakar mömmukökur fyrir hver jól enda eru þær uppáhaldssmákökurnar hennar. Mamma hennar bakaði þær líka alltaf þegar Lilja Sólrún var lítil.mynd/valli MYND/VALLI
Lilja Sólrún Guðmundsdóttir er mikið jólabarn og byrjar að telja niður dagana til jóla í ágúst. Hún bakar að minnsta kosti fimm til sex sortir af smákökum og reynir að vera búin að því áður en aðventan gengur í garð.

„Mér finnst jólin æðisleg og finnst gaman að undirbúa þau. Ég baka allavega fimm til sex sortir af smákökum og stundum fleiri. Það er svo gaman að prófa eitthvað nýtt og erfitt að sleppa þessum gömlu góðu," segir Lilja Sólrún.

Hún byrjar yfirleitt að baka í byrjun nóvember svo allt sé tilbúið þegar aðventan byrjar. „Fjölskyldan nýtur þess svo að borða þær fyrir jólin og við reynum að klára þær áður en hátíðin gengur í garð," segir hún hlæjandi. „Mann langar ekkert í smákökur einmitt um jólin, þá er maður svo saddur af einhverju öðru. Svo er líka gaman að njóta þess að baka í nóvember og hlusta á jólalögin."

Uppáhaldssmákökutegundin hennar er mömmukökur og er uppskriftin sem hún notar einmitt fengin frá mömmu hennar.

„Mömmukökurnar eru búnar að vera lengi í uppáhaldi. Þær eru góðar og svo voru þær alltaf til þegar ég var lítil, mamma bakaði þær alltaf. Það er hægt að setja matarlit í kremið ef maður vill. Ég geri oftast tvöfalt krem því strákunum finnst best að hafa frekar mikið af því."



Mömmukökur

125 g smjörlíki

125 g sykur

250 g síróp

1 egg

500 g hveiti

2 tsk. matarsódi

1 tsk. engifer

Hitið smjörlíki, sykur og síróp í potti og kælið síðan. Hrærið egginu saman við. Sigtið saman hveiti, natrón og engifer. Vætið í með sírópsleginum og hnoðið deigið (í skál eða á borði). Látið deigið bíða á köldum stað yfir nótt.

Smjörkrem

smjör

2 bollar flórsykur

1 eggjarauða

2 msk. rjómi

Vanilludropar

Matarlitur (ef vill)






×