Lífið

Celtics-liðið stoppaði á Íslandi

Stórstjörnurnar í körfuboltaliðinu Boston Celtics undirbúa sig þessa dagana fyrir komandi átök í NBA-deildinni. Er liðið nú á ferðalagi um Evrópu og spilaði til að mynda æfingaleik í Mílanó á sunnudagskvöld.

Æfingaferð liðsins hófst í Istanbúl, en þangað flaug liðið frá Boston fyrir viku. Á leiðinni til Tyrklands gerði flugvél liðsins hins vegar stuttan stans á Keflavíkurflugvelli til að fá meira eldsneyti. Heppnir flugvallarstarfsmenn komu auga á stjörnurnar og tóku meðal annars myndir af sér með Rajon Rondo, leikstjórnanda liðsins.

Lagðist kuldinn á Íslandi að því er virðist illa í körfuboltamennina og sagði nýliðinn Jared Sullinger að Ísland væri kaldara en Boston í janúarmánuði í myndbandsdagbók liðsins á netinu.

- fb, mþl






Fleiri fréttir

Sjá meira


×