Lífið

Vinsælt skart

Jóhanna Metúsalemsdóttir, kría
Jóhanna Metúsalemsdóttir, kría
Vinsælt skartBreska söngkonan Beth Orton bar hálsmen frá Kríu er hún kom fram í sjónvarpsþætti Davids Letterman nú í vikunni.

Jóhanna Methúsalemsdóttir hannar Kríu skartið og sækir innblástur sinn til kríu- og þorskbeina. Nýja lína Jóhönnu er hönnuð út frá þorskbeinum og bar Orton hálsmen úr þeirri línu er hún söng fyrir Letterman.

Skart Jóhönnu hefur vakið nokkra athygli undanfarið og birtist meðal stór umfjöllun um hana og skartið í nýjasta hefti Elle tímaritsins. Orton vakti mikla athygli í byrjun tíunda áratugarins er hún söng með William Orbit og Chemical Brothers og fékk fyrsta plata hennar, Trailer Park, gríðarlega góða dóma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×