Lífið

The Charlies hittu Jónsa

Alma Guðmundsdóttir, Klara ósk Elíasdóttir, Steinunn Þóra Camilla Siguðrardóttir , Charlies, Föstudagur Alma Goodman, Klara Elias og Camilla Stones
Alma Guðmundsdóttir, Klara ósk Elíasdóttir, Steinunn Þóra Camilla Siguðrardóttir , Charlies, Föstudagur Alma Goodman, Klara Elias og Camilla Stones
Hljómsveitin Sigur Rós lauk ferðalagi sínu um Bandaríkin með tónleikum í Hollywood á sunnudagskvöld. Á meðal gesta voru stúlkurnar í The Charlies, sem eru búsettar í kvikmyndaborginni, og vinkona þeirra, enska söngkonan Natasha Bedingfield.

Að sjálfsögðu hittu þær Jónsa og félaga baksviðs að tónleikunum loknum og fór vel á með þeim.

Sigur Rós stígur næst á svið á tónlistarhátíðinni Summer Sonic í Japan á laugardaginn. Íslendingar þurfa að bíða þangað til 4. nóvember til að berja sveitina augum á Iceland Airwaves-hátíðinni.

- bþh, - fb

The Charlies hittu Jónsa





Fleiri fréttir

Sjá meira


×