Lífið

Ótrúlegur árangur

Myndband hljómsveitarinnar Of Monsters and Men við lagið Little Talks hefur verið tilnefnt til MTV-verðlauna fyrir bestu listrænu stjórnun. Tilnefningin er enn ein rósin í hnappagat hljómsveitarinnar sem hefur verið á góðri siglingu á árinu.

Platan My Head is an Animal hefur selst í meira en 420 þúsund eintökum en þar af hafa um 260 þúsund plötur selst í Bandaríkjunum og um 50 þúsund í Þýskalandi. Þá er smáskífa lagsins Little Talks komin í gull í Bandaríkjunum, Þýskalandi, Belgíu og Austurríki. Ótrúlegur árangur hjá Nönnu Bryndísi og félögum. -afb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×