Fastir pennar

Endurteknar staðfestingar

Þórður Snær Júlíusson skrifar
Í febrúar 2009 kynnti Framsóknarflokkurinn sitt helsta tromp í kosningum sem fram undan voru, tilboð um tuttugu prósenta almenna niðurfellingu skulda. Síðan þá hefur þessi krafa verið sett ítrekað fram og háværir þrýstihópar knúið á um að þessi leið verði farin. Fleiri og fleiri stjórnmálamenn úr öllum flokkum hafa tekið undir þessa kröfu.

Á árinu 2012 einu saman hafa komið út þrjár skýrslur sem fara yfir málið. Hagfræðistofnun Háskóla Íslands vann þá fyrstu að beiðni ríkisstjórnarinnar í kjölfar þess að formaður Hagsmunasamtaka heimilanna afhenti forsætisráðherra undirskriftarlista þeirra sem vildu „almennar og réttlátar leiðréttingar á stökkbreyttum lánum heimilanna". Niðurstaðan var nokkuð skýr. Nýju bankarnir hafa fullnýtt þann afslátt sem þeir fengu á húsnæðislánasöfnum, kostnaður við að færa lán niður um 18,7 prósent yrði rúmlega 200 milljarðar króna og hann myndi lenda nánast alfarið á skattgreiðendum, óháð því hvort þeir myndu fá niðurfellingu eða ekki.

Í byrjun apríl kynnti Seðlabankinn lokaniðurstöðu sína á greiningu á stöðu íslenskra heimila. Hún byggir á gagnagrunni sem bankinn aflaði á árinu 2009 og samanstendur af ítarlegum upplýsingum um hvert stakt lán, tekjur, fjölskyldugerð, búsetu og aldur. Hún nær til nærri því hvers einasta heimilis á landinu. Niðurstaðan var sú að tuttugu prósenta almenn skuldaniðurfærsla á verðtryggðum lánum myndi kosta 261 milljarð króna. Um 57 prósent afskriftanna, tæplega 150 milljarðar króna, myndu falla í skaut tekjuháum heimilum. Það eru heimili sem hafa meira en 200 þúsund krónur á milli handanna á mánuði eftir að greitt hefur verið af lánum og lágmarksframfærslu. Einungis fjórðungur afskriftanna myndu skila sér til þeirra sem eru í greiðsluvanda.

Enn ein skýrslan var lögð fram á Alþingi í byrjun júní. Hún var afrakstur vinnu þriggja sérfræðinga sem unnin var fyrir þingið. Í henni kom fram að heildarkostnaður við 20 prósenta niðurfærslu yrði 248 milljarðar króna. Þar af yrði beinn kostnaður ríkis og sveitarfélaga 172 milljarðar. Afgangurinn myndi skiptast á milli innlánsstofnana, sem eru að hluta til í eigu ríkisins, og lífeyrissjóða, sem eru í eigu okkar allra.

En öllum skýrslunum er vísað út í hafsauga af áhugamönnum um afskriftir. Þar sem þær sýna allar sömu niðurstöðu þá eru skýrslurnar sagðar illa skrifaðir leikþættir ríkisstjórnarinnar sem neitar að forgangsraða í þágu heimilanna. Það má gagnrýna sitjandi ríkisstjórn fyrir margt, og sumt ansi kostnaðarsamt, en það er út í hött að gagnrýna hana fyrir að gefa ekki hluta af þjóðinni tæplega fjórtán prósent af vergri landsframleiðslu vegna þess að hávær minnihlutahópur heimtar það.






×