Lífið

Milljóna króna myndir

Ein myndanna sem Júlíus náði af Tom og Katie á dögunum.
Ein myndanna sem Júlíus náði af Tom og Katie á dögunum. Skjámynd/mbl.is
Ljósmyndari Morgunblaðsins, Júlíus Sigurjónsson, datt heldur betur í lukkupottinn á dögunum þegar hann náði myndum af stórstjörnunni Tom Cruise og eiginkonu hans Katie Holmes á rölti í miðbæ Reykjavíkur.

Örfáum dögum eftir að myndirnar voru teknar sótti Holmes um skilnað frá eiginmanni sínum og eru þessar myndir því með þeim allra síðustu sem náðust af parinu saman. Fullyrða má að verðmæti myndanna hækkaði gríðarlega í kjölfar þeirra tíðinda og hafa Júlíus og félagar nú komið þeim í umboðssölu hjá fyrirtæki sem ber heitið Splashnews og sérhæfir sig í að finna og dreifa myndum af frægu fólki.

Hversu miklum peningum myndirnar munu skila er enn óvitað, en meðal þeirra sem hafa þegar keypt þær eru TMZ, The Sun og ACEShowbiz.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×