Lífið

Ostwald Helgason hrósað í hástert

Rihanna í jakka frá Ostwald Helgason með Justin Bieber.
Rihanna í jakka frá Ostwald Helgason með Justin Bieber. Mynd/Getty
Tískumerkið Ostwald Helgason, eftir hönnuðina Ingvar Helgason og Susanne Ostwald, hefur notið sívaxandi vinsælda fyrir fallega og skemmtilega hönnun sína. Söngkonan Rihanna var meðal annars í peysu frá merkinu í myndbandinu við lagið Only Girl og í Ostwald Helgason-jakka í veislu á vegum plötuútgáfunnar Def Jam í Los Angeles fyrir nokkru.

Tískuvefsíðan Fashionista.com fjallaði um tískumerkið Ostwald Helgason á síðum sínum um helgina og kallaði hönnuðina Ingvar og Susanne „óvæntar stjörnur fyrir hausttískuna 2012".

Síðan segir hönnunartvíeykið eiga rætur að rekja til staða sem eru víðsfjarri tískuborgunum London, París og New York, nefnilega Reykjavíkur og Leipzig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×