Lífið

Ný tónlist frá Magnúsi og Jóhanni

Magnús Þór Sigmundsson og Jóhann Helgason
Magnús Þór Sigmundsson og Jóhann Helgason
Tónlistardúettinn Magnús og Jóhann er í þann mund að senda frá sér tvö ný lög. Annað lagið heitir „Þar sem ástin býr" og er eftir Jóhann og hitt „Sumir dagar" sem er eftir Magnús.

Lögin verða á væntanlegri plötu þeirra félaga sem kemur út í haust. Hún verður sú fyrsta sem þeir senda frá sér með nýju efni eingöngu í um tuttugu ár og einnig sú fyrsta sem er alfarið á íslensku. Magnús og Jóhann gáfu í fyrra út safnplötu í tilefni af fjörutíu ára samstarfi sínu og hituðu í framhaldinu upp fyrir Eagles í Nýju Laugardalshöllinni í fyrra. -fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×