Pútín segir pólitíska lausn vel mögulega í Sýrlandi 2. júní 2012 05:45 Hann er nýtekinn við forsetaembættinu í Rússlandi á ný, en Rússar hafa verið gagnrýndir fyrir að standa gegn aðgerðum á vegum Sameinuðu þjóðanna gegn Sýrlandi. nordicphotos/AFP „
Það eru ýmsir hagsmunir í húfi í átökunum og maður þarf að finna þau svæði þar sem þessir hagsmunir fara saman, og fá síðan alla aðila til að setjast að sama borði,“ sagði Vladimír Pútín Rússlandsforseti um ástandið í Sýrlandi, sem farið hefur hríðversnandi undanfarna daga og vikur. „Það þarf ákveðna fagmennsku til og þolinmæði,“ bætti Pútin við og lofaði að beita sér fyrir því að jákvæð niðurstaða fáist. Pútín var staddur í Þýskalandi í opinberri heimsókn hjá Angelu Merkel kanslara. Bandaríkin og fleiri ríki hafa gagnrýnt Rússa harðlega fyrir að standa í vegi fyrir því að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna beiti Sýrlandsstjórn meiri þrýstingi. Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna kom saman í gær og fordæmdi fjöldamorðin í Houla, sem framin voru í síðustu viku, þegar meira en hundrað manns voru drepnir. Navy Pillay, mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, sagði á fundi ráðsins að aðildarríki þess ættu að styðja kröfur um að gerð verði óháð rannsókn á því sem gerðist í Houla. „Að öðrum kosti getur ástandið í Sýrlandi snúist upp í hamslausa styrjöld og framtíð landsins, sem og þessa heimshluta alls, getur verið í mikilli hættu,“ sagði hún. Í gær fréttist svo af því að á fimmtudag hafi enn á ný verið framin fjöldamorð í Sýrlandi. Ellefu verkamenn voru myrtir úti á götu í borginni Homs, þar sem þeir voru á leið til vinnu sinnar. Kofi Annan, erindreki SÞ og Arababandalagsins, sagðist síðan í gær vera orðinn býsna óþolinmóður út af ástandinu í Sýrlandi, það sé farið að valda sér skapraun hve illa gangi að hrinda friðaráætlun Sameinuðu þjóðanna og Arababandalagsins í framkvæmd. Hann sagði að Assad Sýrlandsforseti verði nú að gefa skýr merki þess, bæði til þjóðar sinnar og alþjóðasamfélagsins, „að hann sé ákveðinn í að hrinda áætluninni í framkvæmd og að hann ætli að taka skref áfram í leit að friði“. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Eigandi Gríska hússins: „Erum við einhver mafía?“ Innlent Tónlistarmaðurinn Róbert Örn er fallinn frá Innlent Óttast öryggi barna á leiðinni á golfvöllinn Innlent Lést eftir að hafa fengið rafstraum í heitum potti Erlent „Þetta er óboðlegt og það á að hafa afleiðingar“ Innlent Samþykktu fimmtíu milljarða dala aðstoð til Úkraínu Erlent Umræða sem eigi ekki við rök að styðjast Innlent Sérsveitin kölluð til vegna byssu sem reyndist leikfang Innlent Ellý Katrín hefur kvatt þennan heim Innlent Telur að þetta geti orðið síðasta eldgosið á Sundhnúkareininni Innlent Fleiri fréttir Samþykktu fimmtíu milljarða dala aðstoð til Úkraínu Lést eftir að hafa fengið rafstraum í heitum potti Óeirðaástand í Buenos Aires vegna aðgerðarpakka Milei Lokuðu ferðamannastöðum og skólum vegna mikils hita Gamall handritsbútur reyndist úr guðspjalli um æsku Krists Aðeins fjórðungur Breta vill vera utan ESB Reyna að mynda bandalög fyrir skyndikosningar í Frakklandi Óvíst með afdrif vopnahléstillögunnar Frederiksen enn ekki með sjálfri sér eftir árásina Íhuga að virða tímamótadóm að vettugi Biden virðir sakadóminn yfir syni sínum Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Stilla upp harðlínumönnum til að fylla skarð Raisi Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Bananarisi ábyrgur fyrir morðum kólumbískrar dauðasveitar Umdeildur dómari vill trúræknari Bandaríki Varaforseti Malaví á meðal tíu látinna Hamas samþykkir vopnahléstillöguna Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir Skutu viðvörunarskotum að norðurkóreskum hermönnum Hægri öfl gætu eignast sinn fyrsta forsætisráðherra Tólf ára drengir sekir um morð á nítján ára gömlum manni Öryggisráðið styður friðartillögu Biden Flugvél varaforseta Malaví týnd Biden ber ekki vitni í eigin sakamáli Ekkja leiðtoga ISIS leysir frá skjóðunni Lést af náttúrulegum orsökum Bóluefni gegn flensu og Covid-19 langt á veg komið Macron veðjar á að Frakkar séu í áfalli Fullyrða að gíslar hafi fundist í haldi blaðamanns Sjá meira