Lífið

Fluttur heim til Íslands

Snorri Helgason, fyrrum meðlimur Sprengjuhallarinnar, er fluttur heim til Íslands eftir ársdvöl í London þar sem hann einbeitti sér að tónlistarferlinum. Hann er þó ekki fluttur heim til að slaka á því í lok febrúar leggur hann af stað í tveggja vikna tónleikaferð um Pólland. Spilamennska víðar um Evrópu er einnig fyrirhuguð á næstu mánuðum.

Snorri hefur jafnframt gefið út nýtt myndband við lagið Mockingbird sem hin ítalska Elisa Vendramin leikstýrði. Hægt er að horfa á myndbandið hér fyrir ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×