
Ævintýrið heldur áfram
Sem ég nú óska skátahreyfingunni til hamingju með þennan áfanga, þá hvarflar hugurinn til þeirra ára sem ég átti sjálfur í hreyfingunni frá níu ára aldri – fyrst sem ylfingur en síðan sem skáti og skátaforingi. Margt rifjast upp, svo sem útilegur, skátamót, varðeldar, gönguferðir, söngur og leikir. Ég kynntist nýjum félögum, strákum og stelpum – ungum og öldnum. Svo komu fullorðinsárin og lágu spor okkar víða. Einn er nú læknir, annar smiður, þriðji sálfræðingur, fjórði leikari og einn stofnaði virt stórfyrirtæki. Þannig mætti lengi telja.
Sumir eru fallnir frá, „farnir heim" eins og við kölluðum það, en eru engu að síður skýrir og nálægir í minningunni.
Leikur og þroskiLítið vissi ég sem ungur strákur að skátastarf er annað og meira en leikur einn. Að skilaboðaleikur ylfinga var þjálfun í að hlusta, taka eftir og skila því sem manni var trúað fyrir. Sömuleiðis að gjaldkerastarfið í skátaflokknum tæki mann fyrstu skrefin í því að umgangast peninga af ábyrgð og innrætti heiðarleika og nákvæmni. Að læra þjóðsönginn og allt um íslenska fánann jók virðingu okkar fyrir landi okkar og þjóð. Að vera síðan foringi flokks og sveitar þroskaði m.a. ábyrgðartilfinningu, mannleg samskipti, umhyggju og stjórnunarhæfileika.
Á námskeiðum lærðum við skipulagningu, kennslutækni, stjórnun við varðeld, samstarf við foreldra, kortalestur, umgengni við náttúruna, ótal hnúta og skyndihjálp – sem þá kallaðist „hjálp í viðlögum".
Hér er stiklað á stóru og fátt eitt nefnt. En þegar saman fór leikur og skemmtilegur lærdómur voru áhrifin merkjanleg: Samheldni, sjálfsöryggi, áræðni, heiðarleiki, hjálpsemi og jákvæðni urðu meira og meira áberandi í fari og persónuleika ungra drengja og stúlkna sem fyrr en varði urðu fullorðin og að hefja þátttöku í hringiðu þjóðfélagsins.
Sjálfur veit ég að tíma mínum í skátunum var vel varið. Þeim er að þakka að ég kom betri og sterkari inn í fullorðinsárin, betur undir nám og störf búinn. Ég veit að mín gömlu skátasystkini eru á sömu skoðun. Það sem meira er; samkenndin og gagnkvæmt traust er enn til staðar. Margt sem ég lærði í skátunum hefur oft komið að gagni. Þörf fyrir skyndihjálp hefur komið upp, reynt hefur á frumkvæði og oft hafa hnútarnir komið sér vel, ekki síst „pelastikkið" sem ég kann enn áratugum síðar – bæði einfalt og tvöfalt!
Æskan – framtíð þjóðarinnarForeldrum ræð ég heilt þegar ég segi: Kynnið ykkur skátastarf fyrir börn ykkar og unglinga. Það er heilbrigt, skemmtilegt og þroskandi. Ef þið voruð ekki sjálf í skátunum á margt eftir að koma ykkur gleðilega á óvart. Góð byrjun gæti verið að skoða vefsíðu bandalags skáta – www.skatar.is. Skoðið þar hvað skátar hafa fyrir stafni og lesið skátaheitið og skátalögin.
Næsta skref er svo að hafa samband við skátafélagið í bænum ykkar eða – á höfuðborgarsvæðinu – félagið í ykkar hverfi. Það verður tekið vel á móti ykkur.
Stjórnvöld, ríki og sveitarfélögÉg hvet stjórnvöld til að mæta vel fjárhagslegri þörf skátahreyfingarinnar og annarrar heilbrigðrar æskulýðsstarfsemi. Á tímum efnahagsþrenginga er sérstaklega nauðsynlegt að tryggja börnum og unglingum jákvæð, holl og þroskandi viðfangsefni fjarri hættulegum og spillandi freistingum okkar tíma – unga fólkið er framtíð þjóðarinnar.
Skoðun

Til varnar jafnlaunavottun
Magnea Marinósdóttir skrifar

Heimaþjónusta og velferðartækni: Lykillinn að sjálfbæru heilbrigðiskerfi
Auður Guðmundsdóttir skrifar

Barnaræninginn Pútín
Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar

Um þjóð og ríki
Gauti Kristmannsson skrifar

Málfrelsi og mörk þess á vettvangi lýðræðisins
Helga Vala Helgadóttir skrifar

Sjókvíaeldi á Íslandi fjarstýrt með gervigreind frá Noregi
Ingólfur Ásgeirsson skrifar

Hvers vegna skipta hagsmunir verslanakeðja meira máli en öryggi barna í Ásahverfi Reykjanesbæ?
Ólafur Ívar Jónsson skrifar

Kjarnorkuákvæðið: Neyðarhemill en ekki léttvægt leikfang popúlista
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Stjórnarandstaðan er vannýtt auðlind
Jón Daníelsson skrifar

Ef Veðurstofan spáði vitlausu veðri í 40 ár, væri það bara í lagi?
Björn Ólafsson skrifar

Hægri sósíalismi
Jón Ingi Hákonarson skrifar

5 ára vegferð að skóla framtíðarinnar – eða ekki!
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Ójafnvægi í jöfnunarkerfinu
Anna Sigríður Guðnadóttir,Halla Karen Kristjánsdóttir,Lovísa Jónsdóttir skrifar

Það sem ekki má segja um það sem enginn vill sjá
Viðar Hreinsson skrifar

Krónan, Nettó, Hagkaup, Bónus - það er kominn tími á formlega sniðgöngu
Helen Ólafsdóttir skrifar

Löggæslumál og aðstöðuleysi í Búðardal – ákall um viðbragð og aðgerðir
Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar

Listin að verða fullkomlega ósammála sjálfri sér á mettíma
Þórður Snær Júlíusson skrifar

Þingmenn auðvaldsins
Karl Héðinn Kristjánsson skrifar

Arðgreiðslur í sjávarútvegi: Staðreyndir gegn fullyrðingum
Elliði Vignisson skrifar

Verðugur bandamaður?
Steinar Harðarson skrifar

Við þurfum nýja sýn á stjórnmál okkar - Mamdani-sýn
Hlynur Már Vilhjálmsson skrifar

Sósíalistaflokkurinn heimilislaus - hvað næst?
Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Rán um hábjartan dag
Guðbergur Egill Eyjólfsson skrifar

Af hverju er verðbólga ennþá svona há?
Ólafur Margeirsson skrifar

Sól, sumar og símafriður: 10 ráð varðandi skjánotkun í sumarfríinu
Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Skúli Bragi Geirdal skrifar

Uppbygging hjúkrunarheimila
Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar

Jafnrétti grundvallarforsenda friðar og öryggis í heiminum
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Með skynsemina að vopni
Anton Guðmundsson skrifar

Af hverju er ekki 100 klst. málþóf á Alþingi um alvarlega stöðu barna?
Grímur Atlason skrifar