Fagmenn með áratuga reynslu 15. febrúar 2012 12:23 "
Við setjum þarfir viðskiptavinarins í fyrsta sæti,“ segir Egill hjá Birgisson ehf. "Við leggjum áherslu á að bjóða úrvals vörur frá þekktum og virtum framleiðendum, vörur sem hafa reynst vel við íslenskar aðstæður. “Þekking og reynsla "Áratuga reynsla fjölskyldunnar og starfsfólks okkar í sölu gólfefna og hurða, traust og góð viðskiptasambönd þar sem vinátta, virðing og gagnkvæmt traust ríkir, er undirstaðan að fyrirtæki okkar. Allt eru þetta viðskiptasambönd og umboð sem fjölskyldan hefur haft í yfir 20 ár. “Þjónustan er ástríða "Við feðgarnir rekum fyrirtækið með ódrepandi áhuga og af ástríðu. Við fylgjumst vel með nýjungum, bæði hvað varðar hönnun og gæði. Við kynnum allar áhugaverðar nýjungar fyrir viðskiptavinum, arkitektum, fagmönnum og starfsmönnum og fáum álit þeirra,“ segir Egill. Birgisson nýtur þeirrar gæfu að hafa gott starfsfólk sem flest hefur starfað hjá fjölskyldunni í mörg ár. Þar er til staðar mikil reynsla og fagþekking. Kronotex planka harðparket með 30 ára ábyrgð Fyrirtækið hóf nýlega innflutning á planka harðparketi frá Kronotex í Þýskalandi. Kronotex er einn helsti framleiðandinn á harðparketi í heiminum og framleiðir yfir 50 milljónir fermetra á ári. "Við bjóðum aðeins upp á bestu tegundirnar. Þessar tegundir eru með mikið slitþol og 20-30 ára ábyrgð,“ segir Egill. Kronotex parketið er nú boðið á sérstöku kynningaverði, frá kr. 1.990 per/m², sem er ótrúlega gott verð miðað við gæði að sögn Egils. Nýjungar frá Kährs "Við höfum aukið úrvalið af gæðaparketinu frá Kährs og bjóðum nú meira úrval af plankaparketi og fleiri yfirborðsáferðir en áður. Úrvalið er ótrúlegt, yfir 70 tegundir. Það er gaman að segja frá því að engin verslun í Evrópu býður upp á jafn fjölbreytt úrval af Kährs parketi. Allt Kährs parketið er með 20-30 ára ábyrgð og fæst aðeins hjá okkur. “Hakwood frá Hollandi er nýr birgir fyrir fyrirtækið. Hakwood framleiðir plankaparket, fyrir þá sem gera miklar kröfur um gæði, útlit og áferð. Við bjóðum yfir 30 mismunandi tegundir frá þessum framleiðanda. Ekki má gleyma hinu þekkta vörumerki Pergo frá Svíþjóð. Birgisson býður yfir 20 tegundir af þessu vinsæla harðparketi. "Við erum einnig með aukið framboð af flísum frá Casa dolce Casa, Florim og Buchtal. Þrátt fyrir að framboðið sé nú mjög gott er metnaður til að gera enn betur. Við ætlum að tvöfalda úrvalið á næstu mánuðum,“ segir Egill. Ringo innihurðir með 30% afslætti Ringo innihurðirnar verða með 30% afslætti næstu tvær vikurnar, en frá og með 1. mars verða þær eingöngu til sölu í verslun Birgisson ehf. "Við bjóðum viðskiptavini velkomna í sýningarsalinn í Ármúla 8. Við kappkostum að aðstoða og leiðbeina viðskiptavinum af fremsta megni. Allar vörurnar sem við bjóðum eru í hæsta gæðaflokki og á samkeppnishæfu verði. Starfsmenn okkar eru til þjónustu reiðubúnir,“ segir Egill hjá Birgisson ehf. á Kährs Spirit
Mest lesið Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Viðskipti innlent Auður hefur innreið sína á húsnæðislánamarkað Viðskipti innlent Fasteignamat hækkar um 9,2 prósent á milli ára Viðskipti innlent „Grindavíkuráhrifin“ leiða til talsverðrar hækkunar hjá nágrönnum Viðskipti innlent Kvika vinsælasta stelpan á ballinu Viðskipti innlent Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Sameining við Kviku banka mun taka langan tíma Viðskipti innlent Bein útsending: Fasteignamat 2026 kynnt Viðskipti innlent Hringrásin: „Ég er með blæti fyrir gömlu timbri“ Atvinnulíf Verðbólga lækkar um 0,4 stig Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hálf öld af ástríðu og kappsemi – Bílabúð Benna fagnar 50 ára afmæli Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2025 - kosning Þjónustudagur Toyota Greiðsluáskorun Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Ókeypis trygging með öllum Hakkapeliita dekkjum frá Nokian Tyres Hvað fær Iðnaðarmaður ársins 2025 í verðlaun? Sjá meira