Útblástur á mann er mestur hér 13. desember 2012 09:00 Skýrsluhöfundar Vegagerðarinnar furða sig á að bílaeign skuli vera almennari í Finnlandi en hér. Fréttablaðið/Stefán
Næstum helmingi fleiri nota nagladekk undir bíla sína í Jönköping í Svíþjóð en í Reykjavík, eða 60 prósent á móti 34 prósentum í Reykjavík. Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslunni „Samanburður á umhverfisstjórnun vega- og gatnagerðar á Norðurlöndunum 2012“ sem út kom fyrr á árinu hjá Vegagerðinni. Þar kemur líka fram að losun koltvísýrings vegna bílaumferðar sé mest á hvern íbúa hér í samanburði Íslands, Noregs, Svíþjóðar og Danmerkur. Losunin nemur 2,4 tonnum koltvísýringsígildis á mann í tölum yfir síðasta ár, 2,3 tonnum í Danmörku, 2,1 tonni í Finnlandi og 2,0 tonnum í Noregi. „Það kemur ekki á óvart að Ísland sé með mesta losun enda landið dreifbýlt auk þess sem Íslendingar hafa lengi verið hrifnir af stórum bílum,“ segir í skýrslunni. Mikil losun í Danmörku er aftur á móti sögð koma á óvart, enda sé landið þéttbýlt, fólksbílaeign hlutfallslega minnst og hjólreiðar mjög almennar. Þá er í skýrslunni einnig sagt koma á óvart að hlutfallsleg bílaeign sé ekki mest hér á landi, þrátt fyrir fámenni, strjálbýli og skort á lestarsamgöngum. Bílaeign er almennust í Finnlandi þar sem eru 650 fólksbílar á hverja þúsund íbúa, en næstmest hér, 640 bílar. Í Noregi eru 543 bílar á hverja þúsund íbúa og 389 í Danmörku. - óká
Mest lesið Blákaldur veruleiki blasir við Helgu Þórisdóttur Innlent „Við viljum vera í partíi þar til búið er að gubba á gólfið hjá okkur“ Innlent Búinn að vera með suð í eyranu í rúm þrjátíu ár Innlent TikTok myndbönd Höllu T sem náðu til unga fólksins Innlent Dómurinn segir margt á huldu í máli Kolbeins Innlent Ríkisstjórnarsamstarfi lokið nái frumvarpið ekki í gegn Innlent Telur ekki að Katrín hafi gert mistök Innlent Kolbeinn Sigþórsson sýknaður Innlent Sigurður Ingi fjarri góðu gamni Innlent Fæddist með einn fót og Ungfrú Ísland næst á dagskrá Innlent Fleiri fréttir Hvetur bændur til að forða fé frá aftakaveðri Sakar ríkisstjórnina um vanfjármögnun lögreglunnar Segir samstarfið vera að þurrka flokkinn út Samfylkingin með öll spil á hendi í stjórnarmyndun Biðu eftir strætó sem kemur ekki fyrr en á næsta ári Dregið úr happdrætti Ástþórs Fæddist með einn fót og Ungfrú Ísland næst á dagskrá VG mælist aðeins með þrjú prósent Annasamir dagar framundan hjá Höllu Ökumanns sem ók á mann á rafmagnshlaupahjóli leitað Trúðamótmæli, viðvaranir og einfætt fegurðardrottning Búinn að vera með suð í eyranu í rúm þrjátíu ár Harður árekstur á gatnamótum Suðurlandsvegar og Skeiðavegar Hlutur sakborninga mismikill Sigurður Ingi fjarri góðu gamni Dómurinn segir margt á huldu í máli Kolbeins Telur ekki að Katrín hafi gert mistök Trúðar mótmæla við Alþingi Tvær herþotur og 120 liðsmenn NATO komin til landsins Segir Kolbein hafa veitt liðsinni eftir fremsta megni Vegum lokað vegna veðurs Kolbeinn Sigþórsson sýknaður TikTok myndbönd Höllu T sem náðu til unga fólksins Telja kjósendur Höllu og Katrínar hafa kosið taktískt Brýnt að breyta fyrirkomulagi forsetakjörs Fylgjast grannt með nýrri sprungu innan varnargarðanna Ríkisstjórnarsamstarfi lokið nái frumvarpið ekki í gegn Tekist á um útlendingamálin og brýnt að breyta fyrirkomulagi forsetakjörs Hagsmunir barna ekki „tromp spil“ og niðurstaða umboðsmanns ótæk Von á bráðabirgðaniðurstöðu úr krufningu í þessari viku Sjá meira