Vogunarsjóðirnir höfðu sigur í Grikklandi Magnús Halldórsson skrifar 24. desember 2012 12:30 Vogunarsjóðirnir bandarísku eru margir hverjir með helstu starfsstöðvar sínar á Wall Street í New York.
Gríska ríkið vildi kaupa skuldir landsins á markaði með miklum afslætti, eða um 28 til 30 sent fyrir hverja evru, og leysa þar með mikinn vanda sem ríkissjóður glímdi við. Vogunarsjóðir, sem voru eigendur ríkisskuldanna, höfðu sett sér það markmið að fá 34 til 35 sent fyrir hverja evru, en þeir keyptu skuldirnar á slikk, með það að markmiði að endurheimta meira en ráð var fyrir gert þegar þeir eignuðust skuldir. Framkvæmdastjóri hjá Deutsche Bank, Hakan Wohlin, lagði til við embættismenn hjá Evrópusambandinu að gríska ríkið fengi að kaupa skuldirnar á fyrrnefndu verði, 28 til 30 sent á hverja evru, og leysa þannig mikinn vanda. Hann rökstuddi í minnisblaði að þetta væri í samræmi við lög og reglur, og myndi ekki valda umróti á markaði. Þá sagði hann að vel væri hægt að koma þessu í kring með því að þvinga sjóðina sem áttu skuldir Grikklands til sölu á þessu verði. Eftir mikil átök bak við tjöldin varð úr að vogunarsjóðirnir náðu sínu fram, 12. desember sl., það er fengu þær endurheimtur á skuldunum sem að var stefnt. Greint er frá þessari atburðarás í ítarlegri grein sem birtist í New York Times í gær. Hana má lesa hér.
Mest lesið „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Viðskipti innlent Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Viðskipti innlent Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira