Lífið

Jónína Ben orðin amma

Athafnakonan Jónína Benediktsdóttir er orðin amma. Dóttur hennar og tengdasyni, Jóhönnu Klöru Stefánsdóttur og Stefáni Bjarnasyni, fæddist sonur á miðvikudag.

Á Facebook birtir Jónína myndir af sér skælbrosandi með ömmustrákinn í fanginu og segist vera útgrátin af gleði.

Eiginmaður hennar, Gunnar Þorsteinsson, lengi kenndur við Krossinn, fagnar frísku og stæltu barnabarni og biður að vonum Guð að blessa drenginn.

Þetta er fyrsta ömmubarn Jónínu, sem rekur sem þekkt er heilsulindir undir merkjum Detox og hyggur á framboð fyrir hönd Framsóknarflokksins næsta vor.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×