Í þrælavinnu við að sauma föt fyrir H&M JHH skrifar 24. október 2012 21:46
Ný skýrsla sýnir að verkafólk sem vinnur við að sauma föt fyrir H&M þrælar fyrir 40-60 krónur á tímann. Frá þessu er greint í sjónvarpsþætti sem verður sendur út á sjónvarpsstöðinni TV 4 í Svíþjóð. Í þættinum, sem Jyllands Posten greinir frá, segir að fötin séu saumuð í Kambódíu. Rætt er við þriggja barna móður sem er með tæpar 10 þúsund krónur á mánuði en vinnur allt að 70 klukkustunda vinnuviku. Hún á erfitt með að láta enda ná saman. Í þættinum er líka vísað í skýrslu, þar sem forsvarsmenn H&M lýsa því að yfirvinna og lítil næring leiði til þess að verkafólkið fái aðsvif í vinnunni. Karl-Johan Persson, forstjóri H&M segir að sjónvarpsþátturinn gefi ranga mynd af H&M. Þar sé látið líta út fyrir að fyrirtækið leggist gegn kröfum verkafólksins um hærri laun. Það sé alrangt.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Norskir fjölmiðlar í hart við Meta EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Skoða að sameina Tesla og SpaceX Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Sjá meira