Lífið

Fozzi í flugvélinni

Söngkonan Lady Gaga með Fozzi.
Söngkonan Lady Gaga með Fozzi.
Aðdáendur söngkonunnar Lady Gaga, sem tók við friðarverðlaunum úr hendi Yoko Ono í Hörpu í gær, veittu því athygli að hundur hennar, Fozzi, var hvergi sjáanlegur.

Fozzi er blanda af púðluhundi og amerískum kokker-spaníel og stórstjarnan hefur vart skilið hann við sig eftir að hún tók hann upp á arma sína í ágúst.

Hermt er að Fozzi hafi þurft að dúsa um borð í einkaþotu söngkonunnar á Reykjavíkurflugvelli á meðan hún sinnti erindi sínu hér.

Þrátt fyrir umleitan þess efnis hafi Lady Gaga ekki, frekar en aðrir, fengið að flytja með sér dýr inn til landsins án þess að það færi í einangrun.

-áp, sh






Fleiri fréttir

Sjá meira


×