Lífið

Brunar úr Latabæ í leikhúsið

Stefán Karl Stefánsson.
Stefán Karl Stefánsson.
Leikarinn Stefán Karl Stefánsson sneri aftur á fjalir Þjóðleikhússins á laugardagskvöldið er leiksýningin Með fulla vasa af grjóti var frumsýnd.

Stefán Karl hefur í nógu að snúast, en þessa dagana hann er einnig í tökum á nýrri þáttaröð Latabæjar. Það þarf því að seinka sýningartíma leikritsins um klukkutíma svo að Stefán Karl nái að bregða sér úr gervi Glanna Glæps áður en hann stígur á svið Þjóðleikhússins.

Stefán Karl hverfur svo á braut vestur um haf í október til að leika Trölla sem stal jólunum fyrir bandarísk börn og lýkur þar með sýningum á Með fulla vasa af grjóti.

- áp






Fleiri fréttir

Sjá meira


×