Lífið

Stiller í stjörnufans

Stiller leitaði að íslenskum leikurum í stór hlutverk í myndina fyrr á árinu.
Stiller leitaði að íslenskum leikurum í stór hlutverk í myndina fyrr á árinu.
Flestum er kunnugt um dvöl leikarans og leikstjórans Bens Stiller hér á landi við tökur á myndinni The Secret Life of Walter Mitty. Á laugardagskvöldið tók Stiller sér greinilega frí frá tökum og til hans sást á barnum á 101 hóteli í Reykjavík.

Þar voru sessunautar Hollywood-stjörnunnar engir aðrir en leikkonan unga og efnilega María Birta Bjarnadóttir og Ólafur Darri Ólafsson.

Ekki er vitað hvernig fund þeirra þriggja bar að en vitað er að Stiller leitaði að íslenskum leikurum í stór hlutverk í myndina fyrr á árinu.

Tíminn leiðir svo í ljós hvort þau María Birta og Ólafur Darri verði með Stiller á hvíta tjaldinu á nýju ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×