Lífið

Ben Stiller á hjólabretti

Ben Stiller renndi sér ásamt fríðu föruneyti á hjólabretti.
Ben Stiller renndi sér ásamt fríðu föruneyti á hjólabretti.
Vegfarendur á Miklubraut ráku upp stór augu síðdegis á laugardag þegar leikstjórinn og leikarinn heimsfrægi Ben Stiller renndi sér ásamt fríðu föruneyti á hjólabretti eftir gangstéttinni norðan megin götunnar.

Brettin voru af lengri gerðinni - þeirri sem á ensku kallast "longboard" - og hópurinn hafði lagt bílum sínum uppi á grasflötinni í vegkantinum austan við göngubrúna yfir að Kringlunni.

Stiller er sem kunnugt er hér á landi til að taka upp myndina The Secret Life of Walter Mitty en gefur sér þó einnig tíma til dægrastyttingar, eins og til dæmis köfunar í Silfru á Þingvöllum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×