Lífið

Athyglisverður borgarstjóri

Jón Gnarr, borgarstjóri.
Jón Gnarr, borgarstjóri.
Slúðursíðan Dlisted.com hrósar Jóni Gnarr fyrir þátttöku í gleðigöngunni sem fram fór á laugardag.

Borgarstjórinn klæddi sig í kjól og huldi andlit sitt með lambhúshettu áþekkri þeirri er meðlimir pönksveitarinnar Pussy Riot skarta á tónleikum.

Maður að nafni Michael K stendur að baki síðunni og í færslunni spyr hann hvenær fólk ætli að flytja búferlum frá Bandaríkjunum til Íslands.

Hann lýkur færslunni á orðunum "við þurfum öll á borgarstjóra að halda sem styður Pussy Riot".






Fleiri fréttir

Sjá meira


×