Lífið

Sveitabrúðkaup hjá fjölmiðlapari

Þórhildur Ólafsdóttir.
Þórhildur Ólafsdóttir.
Sveitabrúðkaup Fjölmiðlaparið Þórhildur Ólafsdóttir og Sveinn Halldór Guðmarsson gengu í það heilaga um helgina að viðstöddum vinum og vandamönnum.

Þau starfa bæði á fréttastofu Ríkissjónvarpsins. Parið bauð til veislu vestur í Grundarfirði en Þórhildur á ættir sínar að rekja þangað.

Það var svo systir brúðgumans, sr. Sigríður Guðmarsdóttir, sem pússaði parið saman. Veislustjórar voru Katrín Bessadóttir og Ásmundur Haraldsson og var gleðin víst við völd fram eftir nóttu í sveitinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×