Lífið

Atli kynnir bjarta framtíð

Atli Fannar Bjarkason.
Atli Fannar Bjarkason.
Atli kynnir Bjarta framtíð Fréttastjórinn og pistlahöfundurinn Atli Fannar Bjarkason hefur tekið við starfi kosningastjóra Bjartrar framtíðar, sem er framboð Guðmundar Steingrímssonar og Heiðu Kristínar Helgadóttur.

Fyrir vikið hefur hann látið af störfum á Fréttablaðinu. Lítið hefur heyrst úr herbúðum Bjartrar framtíðar síðan stjórnmálaaflið var kynnt til sögunnar en búast má við auknum krafti í kosningabaráttuna með tilkomu Atla Fannars, enda styttist óðum í alþingiskosningar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×