Skráning Facebook dregur dilk á eftir sér Magnús Halldórsson skrifar 23. maí 2012 08:49 Notendur Facebook á heimsvísu eru yfir 900 milljónir. Samfélagsmiðillinn hagnaðist um einn milljarð dala í fyrra, eða sem nemur um 126 milljörðum króna.
Gengi Facebook féll um 9 prósent í gær, en daginn þar á undan féll gengi bréfa félagsins um tæplega 11 prósent. Þetta hrun á markaðsvirði félagsins hefur nú kallað fram sterk viðbrögð hjá fjárfestum sem hafa tapað á fjárfestingunni í Facebook, og er þar ekki síst horft til þess hvernig skráningin var kynnt fyrir þeim sem keyptu bréf strax við skráningu. Þar beinast spjótin að bankanum sem hafði umsjón með skráningarferlinu fyrir hönd Facebook, Morgan Stanley. Richard Ketchum, framkvæmdastjóri Fjármálaeftirlitsins í New York (FINRA), segir í viðtali við Wall Street Journal að nú sé verið að skoða tiltekin atriði er varðar skráningu félagsins, er þar ekki síst horft til kynningargagna um útboðið. Gengi Facebook var í 31 dal á hlut í gær en við skráningu, sl. föstudag, var það 38. Minni fjárfestar hafa einnig kvartað til dómstóla í New York vegna tæknilegra erfiðleika hjá Nasdaq á fyrsta degi viðskipta með Facebook bréfin, en skráningunni var seinkað um hálftíma vegna þeirra. Þessir erfiðleikar eru sagðir hafa leitt til taps fyrir marga fjárfesta, að því er fram kemur í umfjöllun breska ríkisútvarpsins BBC um málið. Sjá má umfjöllun BBC hér.
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs Neytendur Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Ísland eins og stefnumótasíða í sjávarútvegi Atvinnulíf Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Viðskipti innlent „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira