The Avengers rýfur milljarð dollara múrinn 14. maí 2012 14:40
Ofurhetjumyndin The Avengers er nú fjórða vinsælasta kvikmynd allra tíma en hún hefur halað inn rúmlega milljarð dollara á heimsvísu. The Avengers hefur slegið hvert metið á fætur öðru síðan kvikmyndin var frumsýnd í Evrópu fyrir nokkrum vikum. Þar á meðal átti hún arðbærustu frumsýningarhelgi allra tíma í Bandaríkjunum. Ofurhetjurnar fóru létt með að sigra félagana Johnny Depp og Tim Burton í síðustu viku en kvikmynd þeirra, Dark Shadows, var önnur vinsælasta kvikmyndin í Bandaríkjunum á eftir The Avengers. Disney, sem er dreifingaraðili The Avengers, sagði í gær að kvikmyndin komi til með að fara fram úr myndinni Transformers: Dark of the Moon en hún er fjórða vinsælasta kvikmynd allra tíma.Joss Whedonmynd/WikipedaÞað var kvikmyndagerðamaðurinn Joss Whedon sem leikstýrði og skrifaði The Avengers. Ferill Whedons þykir afar sérstakur en hann hefur framleitt fjölda sjónvarpsþátta, þar meðal Buffy The Vampire Slayer, Dollhouse og geimóperuna Firefly. Þá var hann tilnefndur til Óskarðsverðlauna fyrir handrit sitt að teiknimyndinni Toy Story. Whedon birti þakkarbréf til aðdáenda sinna eftir frumsýningarhelgi „The Avengers" í Bandaríkjunum. Hægt er að sjá brot úr kvikmyndinni hér fyrir ofan.
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs Neytendur Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira