Rauðar tölur lækkunar á mörkuðum 14. maí 2012 16:38
Hlutabréfamarkaðir í Bandaríkjunum opnuðu með rauðum tölum lækkunar í dag en áhyggjur fjárfesta vegna pólitískrar óvissu í Suður-Evrópu, þar helst Grikklandi, hafa farið vaxandi undanfarin misseri. Þannig lækkaði Nasdaq-vísitalan í Bandaríkjunum um 0,53 prósent strax við opnun, og var lækkunin öðru fremur rakin til svartsýni á stöðu mála á mörkuðum í Evrópu. Inu Drew, framkvæmdastjóra fjárfestinga hjá JP Morgan Chase, var sagt upp í dag og hafði það einnig nokkur áhrif á mörkuðum, einkum á hlutafé í JP Morgan en strax við opnun lækkaði gengi bréfa bankans um tæplega tvö prósent. JP Morgan tilkynnti í síðustu viku um tap upp á tvo milljarða dali, eða sem nemur 250 milljörðum króna, vegna viðskipta bankans með bandarísk fyrirtækjaskuldabréf en bankinn veðjaði á að bandarískur efnahagur myndi rétta hraðar úr kútnum en raunin var. Markaðsverð hlutabréfa hefur lækkað nokkuð í Evrópu í dag. Þannig hefur DAX vísitalan lækkað um tæplega tvö prósent líkt og FTSE 100 vísitalan.
Mest lesið Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Norskir fjölmiðlar í hart við Meta EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Skoða að sameina Tesla og SpaceX Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Sjá meira