Nærri fjórði hver maður án vinnu á Spáni 3. apríl 2012 12:00 Frá Spáni. Spánverjar reyna nú allt til þess að efla efnhaginn hjá sér, m.a. með auglýsingum þar sem ferðamenn eru hvattir til þess að koma til landsins.
Efnahagsvandinn á Spáni er djúpstæður, og er síst að minnka, samkvæmt hagtölum um atvinnuástandið í landinu sem hagstofa Evrópusambandsins, Eurostat, birti í gær. Samkvæmt þeim mælist atvinnuleysið tæplega 24 prósent, eða nærri því að fjórði hver maður á vinnualdri sé án vinnu. Samtals eru tæplega 4,8 milljónir manna án vinnu, og jókst fjöldinn um tæplega 40 þúsund frá því í febrúar. Þau störf sem tapast hafa eru aðallega úr þjónustugeiranum, en þar hefur verið mikill samdráttur, ekki síst þar sem sífellt stærri hópur hefur minna á milli handanna en áður. Spænsk stjórnvöld freista þess nú að ná tökum á vanda ríkissjóðs með stórfelldum niðurskurði. Gert er ráð fyrir því að skorið verði niður um 35 milljarða evra, liðlega sex þúsund milljarða króna, á þessu ári. Óttast er að þessar aðgerðir muni dýpka vandamálin á atvinnumarkaði enn frekar, þar sem þessum aðgerðunum muni fylgja umfangsmiklar uppsagnir og launalækkanir. Til framtíðar vonast stjórnvöld þó til þess, að betri staða ríkissjóðs muni hjálpa Spáni að ná efnahagslegum vopnum sínum á nýjan leik.
Mest lesið Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Fleiri fréttir „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Norskir fjölmiðlar í hart við Meta EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Skoða að sameina Tesla og SpaceX Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Sjá meira