Matur

Helgaruppskrift Helgu Möller

Helga Möller söngkona segist jafnvel elda helgarmatinn á mánudögum sökum óreglulegs vinnutíma. Hún borðar sjaldan steikur nema alveg spari og kýs heldur léttari mat.

Hún deilir hér með okkur æðislegri uppskrift af kjúklingi fyrir helgina og hollu og ljúffengu bananabrauði á eftir sem hún státar sig mikið af enda uppskriftin hennar frá grunni.

Kjúklingaréttur með sætum kartöflum

Sæt(ar) kartöflur afhýddar og sneiddar, settar í eldfast mót. 

Olíu, salti og pipar stráð yfir kartöflurnar og þær bakaðar í 30-40 mín. í ofni (eftir smekk).

Takið kartöflurnar út úr ofninum og dreifið einum poka af spínati yfir.

Á meðan kartöflurnar eru að malla í ofninum eru kjúklingalundir/bringur, niðursneiddar og steiktar á pönnu. Kryddið með karríi og hvítlaukskryddi eftir smekk. 

Setjið kjúklinginn svo ofan á spínatið.

Setjið því næst eina til tvær krukkur af mangóchutney yfir kjúklinginn.

Ristuðum hnetum/möndlum með hýði (mega vera hvaða hnetur sem er) dreift yfir ásamt lúku af muldu Ritzkexi.

Að lokum er rifinn ostur og fetaostur settur yfir réttinn og hann bakaður í ofni á 180°C í um 20-30 mín.

Bananabrauð Helgu Möller

3 þroskaðir bananar

4 msk. agavesíróp

3 dl gróft spelt

2 dl Granóla-múslí

1 egg

1 tsk. vínsteinslyftiduft

smá maldonsalt

Allt pískað saman með gaffli í skál og bakað við 180 gráður í eina klukkustund.

Bananabrauðið er best nýbakað með miklu smjöri en eftir tvo daga, ef eitthvað er eftir, er mjög gott að rista það.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×